Skelfilegt að formaður Vinstri grænna skuli ekki ætla að standa með þjóð sinni.

Hörmulegt er að heyra að Steingrímur J. fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna skuli nú lýsa því yfir að það sé óvíst hvort hann mæti á kjörstað til að kjósa þann 6.mars um Icesave. Það er ömurlegt að formaður stjórnmálaflokks skuli lýsa því yfir að hann skuli íhuga að hunsa kosningar um svo stórt mál og gefa þannig lýræðinu í landinu langt nef. Samkvæmt öllum leikreglum okkar er það réttur almennings að fá að segja sitt álit. Það er kostur en ekki galli á okkar landi.

Steingrímur J. á að standa með þjóð sinni. Það hefur sýnt sig að ef Íslendingar standa saman getum við náð árangri.

Viðhorf Steingríms J. er hörmulegt og standi hann við það á hann í framhaldinu að hætta í stjórnmálum.


mbl.is Óvíst hvort Steingrímur kýs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Okkur munar ekkert um hann ..hafið þið ekki tekið eftir að hann er rólegur núna ,, hann er að gefast upp það eru ekki allir sem standa með honum eins og hann var í stjórnarandstöðu,,..burt með þetta vinstri pakk.....

Jónas K. Eggertsson (IP-tala skráð) 26.2.2010 kl. 17:30

2 Smámynd: Elís Már Kjartansson

Já hvað er hægt að segja um Steingrím. Ég taldi þennan mann vera með hugsjón en mér skjátlaðist hrapalega. Steingrímur sagðist vera á móti ESB ég trúði honum en mér skjátlaðist hrapalega. Steingrímur sagðsit mundu berjast gegn þvingunum hollendinga og bréta í Icesave ég trúði honum en mér skjátlaðist hrapalega....... nenni varla að segja meira því það hefur allt verið svikið sem hægt var að svíkja. En samt merkilegt nokk að hann segist sjálfur standa á sinni sannfæringu og ég trúi honum því sannfæring hans breytist á 5 mínútna fresti.

Elís Már Kjartansson, 26.2.2010 kl. 20:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 828238

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband