Heiðarlegur málflutningur og ábyrg stjórnarandstaða skila Sjálfstæðisflokknum auknu fylgi.

Bjarni Benediktsson,formaður Sjálfstæðisflokksins, fer sífellt vaxandi í starfi sínu. Hann ásamt öðrum forystumönnum hefur ástunað ,jög heiðarlegan málflutning og rekið ábyrga stjórnarandstöðu.

Þjóðin kann mjög vel að meta þá ábyrgu afstöðu sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt í Icesave málinu. Sú ábyrga afstaða mun skila þjóðinni á endanum mun betri samningi en stefndi í.

Fleiri og fleiri eru einnig að gera sér grein fyrir að það ríkir algjört stjórnleysi hjá Vinstri stjórninni. Það er hreinlega ekkert að gerast í að leysa vandamál heimila og fyrirtækja. Það eina sem eitthvað virðist vera að gerast eru afskriftir skulda hjá þeim sem áttu hvað mestan þátt í hruninu.

Engin samstaða er í ríkisstjórninni að framkvæmdir geti farið á fulla ferð. Svo virðist vera sem Vinstri grænir telji það sitt höfuðverkefni að leggjast gegn og reyna að koma í veg fyrir framkvæmdir,sem aukið gætu atvinnu. Nærtækasta dæmið er andstaða VG gegn framkvæmdum á Suðurnesjum.

Það er því eðlilegt að Sjálfstæðisflokkurinn bæti verulega við fylgi sitt.

 


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn eykur fylgi sitt verulega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sú yfirbreiðslupólitík sem stunduð hefur verið af Hrun-flokkunum hefur greinilega skilað tilgangi sínum. Er þó hrædd um að þegar ICESAVE er lokið og skýrslan komin, svo ekki sé talað um að skriður sé kominn á aðildarviðræður, þá fari aftur að halla á hitt borðið. Gallinn við að ná upp fylginu núna er að það eru bara ekki þingkosningar á næstunni.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 1.3.2010 kl. 00:50

2 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Þrátt fyrir Baugsmiðla - RÚV og allan róginn um að Sjálfstæðisflokkurinn hafi sett heimskreppuna af stað þá er þetta staðan í dag - Vissuleg skoðanakönnun en ekki kosningar - en vísbending engu að síður

Það er reyndar þannig að rógurinn hittir venjulega fyrir uppruna sinn að lokum -  það virðist vera að gerast núna

Fyrir Hólmfríði og aðra uppnefnara -

ég er sannfærður um að Bjarni sé ekki sekur um jarðskjálftana í Chile -

Ólafur Ingi Hrólfsson, 1.3.2010 kl. 01:13

3 identicon

Ólafur Ingi Hrólfsson,  Rétt hjá þér. Davíð Oddson setti þá af stað

GRASASNI (IP-tala skráð) 1.3.2010 kl. 04:57

4 identicon

" heiðarlegur málflutningur " kanntu annan Sigurður..............

Vilhjálmur (IP-tala skráð) 1.3.2010 kl. 05:53

5 identicon

Þú ert á algjörum villigötum, á meðan ekki er upplýst hvernig þessi  "könnun" var gerð er hún ekki túskildings virði.

Smm (IP-tala skráð) 1.3.2010 kl. 10:10

6 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Ég hélt að þú værir í öðrum hrunflokknum sem þú vilt svo kalla Hólmfríður.

Ragnar Gunnlaugsson, 1.3.2010 kl. 10:26

7 Smámynd: Óðinn Þórisson

Hólmfíður - Samfylkingin er hrunflokkur - manstu ekki að þinn flokkur var í ríkisstjórn þegar bankarnir féllu og hver var bankamálaráðherra jú Björgvin G. Sigurðsson og í hvaða flokki er hann nú - hann er í Samfylkingunni - esb verður aldrei samþykkt þetta veistu -  og eins veistu að ríkisstjórnin er búinn að tapa allri virðingu og trausti fólksins í landi - aðeins 21% treysta henni Jóhönnu

Óðinn Þórisson, 1.3.2010 kl. 18:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 828218

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband