Hvers vegna vildu Steingrímur J. og Jóhanna láta almenning borga 200 milljörðum meira?

Það hlýtur að hafa farið hrollur um marga við að horfa á fréttirnar í kvöld þar sem rifjað var upp er Jóhanna og Steingrímur J. voru að dásama fyrri samninga sem gerðir höfðu verið við Breta og Hollendinga.

Annars eins samningamaður og Svavar Gestsson hafði ekki fundist á jarðkringlunni og sennilega ekki í alheiminum.

Nú liggr á borðinu samningur sem sagður er vera 200 milljörðum hagstæðari en Svavarssamningurinn svokallaði.

Maður hlýtur að spyrja, geta Steingrímur J.og Jóhanna setið áfram í ríkisstjórn eftir að hafa ætlað að þröngva uppá Íslendinga 200 milljarða skuldbindinga.

Geta þau virkilega setið í sínum ráðherrastólum áfram eins og ekkert sé?


mbl.is Kostnaður 50 milljarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Auðvitað á ríkisstjórnin að segja af sér ,boða til kosninga og kjósa um 21 þingmann án tengsla þeirra við stjórnmálaflokka .Það er búið að sýna sig að flokkarnir eru fullir af spillingu og eiginhagsmunapoti.Af hverju ekki að skera niður í þingmannafjölda eins gert er í heilbrigðismálunum,því færri þingmenn minna rifist og karpað eins og hefur verið til þessa og þar með enginn vitræn niðurstaða í málin.

Sigurgeir Árnason. (IP-tala skráð) 9.12.2010 kl. 21:31

2 identicon

Hver segir að hann sé 200 milljörðum hagstæðari? Bjarni Ben?

Nú vitum við ekki hversu mikið eignir landsbankans munu duga upp í skuldina, gefum okkur það að eignirnar dugi fyrir allri skuldinni, er þessi nýji samningur ennþá að spara okkur 200 milljarða?    Nei

Það er gjörsamlega fáranlegt að henda einhverri svona tölu fram í fjölmiðlum, einhver tala sem hefur engar stoðir í raunveruleikanum

og að sjálfsögðu gleypa einhverjir við henni....

Ef að eignirnar duga fyrir allri skuldinni, þá skiptir þessu nýji samingur engu máli, ekki það að ég geri ráð fyrir því, málið er bara að engin veit fyrir vissu hvað fæst.

Tryggvi (IP-tala skráð) 9.12.2010 kl. 21:36

3 identicon

Tryggvi það standa samt eftir vexti og 5,5-3 eru 2,5 sem er ævintýralega há upphæð af svo stórri tölu. Ergo 5,5= Fúsk 3 = vönduð vinna. Að láta tossa sem ekki klárað sitt nám í Austur Þýskalandi sjá um þetta eða hámenntaðan samnigamann skýrir muninn. Til að þetta komist nú til skila þá borga þrotabú EKKI vexti. Alþjóðlegar lagareglur og koma ekki frá Bjarna.

Guðmundur Ingi Kristinsson (IP-tala skráð) 9.12.2010 kl. 22:39

4 identicon

Búin að tapa 845.581.210.644   ISK  á töfinni. Ef við drögum 200 frá er tapið bara 645.581.210.644   ISK.

stefan benediktsson (IP-tala skráð) 9.12.2010 kl. 23:21

5 identicon

Elsku Stefán Benediktsson, lærðir þú sama hagfræðikúrs í austur Þýskalandi og Svavar Gestsson. Ef ég beiti sömu heimskulegu reikniaðferðinni og sá sem þú apar þetta upp eftir þá vorum við að græða 1.000.000.000.000.000 ISK á mismuninum, framreiknað út frá töpuðum framtíðartekjum á vaxtamuninum.

Björn (IP-tala skráð) 9.12.2010 kl. 23:48

6 identicon

Þegar Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands setti hryðjuverkalögin, samin fyrir óvini Hins Frjálsa Heims, á þá eitt hæststandandi land í heiminum, siðferðilega sem á öðrum sviðum, Ísland, með lengstu alþingishefð í veröldinni..............herlaust land sem var á toppnum á Global Peace Index sem friðsælasta og mest friðelskandi land heims......

þá sveik hann Vestræna menningu eins og hún lagði sig. Lagði lóð á vogarskálar þeirra sem vilja tortýma henni með að gera lítið úr hryðjuverkalögunum, og lagði eyðingaröflunum lið með að bera þau saman við 30 misvitra íslenska bankamenn.

Að láta þjóðina alla gjalda siðferðis örfárra óvinsælla bankamanna er sama "lógík" og var að baki Helförinni, sem nazistar, óvinir Vestrænnar menningar eins og Gordon Brown og terroristarnir vinir hans sem þakka honum fyrir að vera komnir á blað með Íslandi og þar með hvítþvegnir, töldu sanngjarna laus við hinu svokallaða "gyðingavandamáli".

Ef Íslendingar taka á sig þessar skuldir munu þeir hljóta slæmt karma fyrir, afþví skuldaþrældómur er helsta ástæða sárrar fátæktar fátækustu ríkja heims, en ekki skortur á matvælum eða annað. Þeir sem ekki þekkja til ættu að kynna sér "Make Poverty History" átakið sem Bono í U2 var front maður fyrir. Við skuldum þessum þjóðum að við látum ekki þjóðirnar sem hnepptu þau í þennan þrældóm og hafa með því svellt milljónir og milljarða barna í hel......hneppa okkur í þrældóm líka. Ef við sleppum við að borga, opnar það smugu fyrir þau að hætta að borga. Svo mikilvægt er okkar hlutverk, og ófyrirgefanlegt að bregðast því núna, og erum við þá persónulega ábyrg fyrir sveltandi Afríkubúum og höfum með því að taka á okkur óréttlátar skuldir lagt persónulega blessun íslensku þjóðarinnar yfir meðferðina á okkar minnstu bræðrum meðal þjóða heims.

Að lokum skal hafa í huga að Þroskastríðið er ekki á enda. Bretar hafa arðrænt þjóðir heims hvað mest allra þjóða og heiminum blæðir enn undan heimsvaldastefnu þeirra. Þeir hafa lengi ásælst auðlindir okkar.

Frelsi - Jafnrétti - Bræðralag!

Á lykiltímum í veraldarsögunni þýðir ekki að hugsa smátt...Ísland verður að rísa undir hlutverki sínu.....

Lykillinn (IP-tala skráð) 10.12.2010 kl. 02:39

7 Smámynd: Hörður Þórðarson

"Maður hlýtur að spyrja, geta Steingrímur J.og Jóhanna setið áfram í ríkisstjórn eftir að hafa ætlað að þröngva uppá Íslendinga 200 milljarða skuldbindinga.

Geta þau virkilega setið í sínum ráðherrastólum áfram eins og ekkert sé?"

Nei, þau ætti að hætta þessu. Steini getur farið á sjóinn og Jóhanna getur prjónað lopapeysur. 

Hörður Þórðarson, 10.12.2010 kl. 09:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 828242

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband