Nýjasta afrek Vinstri velferðarstjórnarinnar. Neita að hlusta á Mannréttindadómstólinn.

Hroki,valdníðsla og yfirgangur vikrðast vera aðalsmerki þessarar fyrstu tæru Vinstri stjórnar i landinu,sem kallar sig velferðarstjórn. Flestir eiga óskup erfitt með að sjá jákvæða merkingu í orðinu velferð undir Vinstri stjórn.

Það hefði nú einhvern tíma þótt saga til næsta bæjar að  formaður stjórnmálaflokks sem kennir sig við jafnrétti að segja það mjög ólíklegt að nokkuð verði farið eftir niðurstöðu Mannréttindadómstólsins.

Alveg er ég viss um að fulltrúar réttlætis og mannréttinda Jóhanna Sigurðardóttir og Ögmundur Jónasson hefðu örugglega reynt að slá sín eigin met í málþófi á Alþingi ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði hagað sér svona.

Reyndar getur skýringin verið sú að gagnsæið sé orðið svo mikið í Samfylkingunni að það sjáist orðið í bakhliðina á plötunni. Þar komi í ljós að Samfylkingin hefur breytt um stefnu hvað varðar málsskotsrétt forsetans og að nú leggst Samfylkingin gegn niðurstöðu Mannréttindadómstólsins.

Reyndar er ánægjulegt að Samfylkingin skuli nú sýna sitt rétta andlit.


mbl.is Endurgreiðsla iðnaðarmálagjalds ólíkleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Hroki, valdníðsla og yfirgangur ERU aðalsmerki Icesave-stjórnarinnar.  Og bætum lygum við. 

Elle_, 28.4.2010 kl. 17:13

2 identicon

Ég hélt að til þess að vera kallaður "til vinstri" eða "vinstri sinnaður" þyrfti maður að taka hagsmuni fólksins ofar hagsmunum fyrirtækja, fjármagnseigenda og gæta að jöfnuði í þjóðfélaginu.

Eitthvað sem þessi ríkisstjórn hefur ekki gert... þannig að hún er að öllu eða hluta til "Hægri sinnuð" ?

Sennilega samt ekki öfundsvert starf að þrífa skítinn eftir þá sem voru kostnir til valda á Íslandi síðustu 18 árin.

Árni Þór Guðmundsson (IP-tala skráð) 28.4.2010 kl. 20:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband