Unnið verður að fullu eftir áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,segir Jóhanna. Var gagnrýni VG bara,allt í plati.

Samkomulagið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn var gagnrýnt harkalega af forystumönnum Vinstri grænna.Steingrímur J. hefur marg lýst því yfir að það ætti alls ekki að eiga nokkur viðskipti við þennan sjóð. Hann hélt því fram að í þeim löndum sem sjóðurinn hefði haft afskipti hefði allt farið á slæman veg.Svo langt gekk hann að segja að hann vildi helst skila láninu. Dró svo reyndar aðeins í land og sagði að það yrði að breyta ýmsum skilmálum Alþjóðasjóðsins.

Nú segir Jóhanna Sigurðardóttir verðandi forsætisráðherra að það verði unnið að fullu eftir áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Verði það svo kemur í ljós að gagnrýni VG var bara sýndarmennskan ein saman.

Hér er ekki um neitt smá mál að ræða þ.e. hvort við ættum að óska eftir aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eða ekki.Samfylkingin lagði mikla áherslu að þess þyrfti og sætti verulega harðri gagnrýni Vinstri grænna.

Það verður fróðlegt að fylgjast með Steingrími J. verðandi fjármálaráðherra framkvæma stefnu og áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hver er þá eiginlega munurinn á núverandi og væntanlegum fjármálaráðherra hvað samskiptin við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn varðar?  Verður hann einhver?


mbl.is Býst við stjórn á laugardag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband