Verður búið að merkja prófkjörsseðlana fyrirfram hjá Samfylkingunni?

Samfylkingin talar oft hástöfum um að allt igi að vera opið. Þar eigi hinn almenni flokksmaður a hafa áhrif. Þar gildi sko lýðræðið. Það er því furðulegt að forystumenn flokksins skulu halda blaðamannafund og segja kjósendum hvernig úrslitin í prókjörinu ættu að vera. Jóhanna á að vera í fyrsta sæti í öðru Reykjavíkurkjördæminu og Ingibjörg Sólrún í hinu. Svo er útgefin lína að kjósa eigi Össur í þriðja sætið.Ingibjörg á áfram að vera formaður og Jóhanna forsætisráðherraefni.

Til hvers að vera að leggja í kostnað við prófkjör? Til hvers að vera leggja í kostnað við landsfund? Flokksforystan er búin að ákveða úrslitin fyrirfram.

Það liggur við að Samfylkingin ætli að senda út kjörseðla í prófkjörinu,þar sem búið er að merkja við hvernig raða á frambjóðendum í sæti. Þetta er nú skrítið lýðræði hjá Samfylkingunni.


mbl.is Ingibjörg býður sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, furðulegt.  Það segirðu satt.  

EE elle (IP-tala skráð) 1.3.2009 kl. 14:56

2 identicon

Það er tungunni tamast sem hjartanu er kærast.  Þú sigurður hefur þinn skilning á lýðræði og hefur greinilega búið við þá gerð lýðræðis í þínum flokki sem ekki hugnast samfylkingarfólki. 

Það er nefnilega þannig að umræddir aðilar bjóða sig fram í umrædd sæti.  Það er svo kjósenda ó prófkjöri Sf. að ákveða hvort þeir hljóta brautargengi í þau sæti.

Það hefur verið sagt um Flokkinn (les. sjálfstæðisflokkinn) að kjósendur hans mundu kjósa hann þó það væri skjöldóttur kálfur í efsta sæti ogsauðfé í hinum.  Þar er flokkstryggðin slík að menn og konur kjósa það sem þeim er boðið.  Hvað sem það er. 

 Þannig er það ekki í Sf. og verður aldrei.  Umræddir aðilar eiga engin sæti fyrr en Samfylkingarfólk hefur kosið þá.  Það er nú þannig.

Sigtryggur Karlsson (IP-tala skráð) 1.3.2009 kl. 16:22

3 identicon

Því miður er núverandi forysta Samfylkingarinnar "heimsmeistarar í lýðskrumi".  Ég spái því að þetta eigi allt eftir að snúast í höndunum á þeim, eins og gerðist hjá Framsókn, þar sem sá sem fékk fylki fráfarandi forystu var sá fyrsti til að falla út í forvali um formann...

Jakob Þór Haraldsson (IP-tala skráð) 1.3.2009 kl. 18:26

4 identicon

Samfylkingaflokkurinn er spilltasti flokkur landsins með siðspilltan Forseta.Vonandi kemur Davíð í stjórnmálinn aftur.

Sigurbjörg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 1.3.2009 kl. 21:18

5 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Já, hinar lýðræðissinnuðu samfylkingarkonur tóku sætin frá klukkutíma áður en frestur til skráningar í prófkjör rann út. Buðu fleiri sig fram í þessi sæti? Hvað ef einhverjir aðrir fá yfirgnæfandi fylgi í þau? Eða munu kjósendur bara lúta hinum "lýðræðislega" vilja foringjanna?

Við bíðum spennt.

Ragnhildur Kolka, 1.3.2009 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 828237

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband