Efast Svandís um að Samfylkingin meini eitthvað með máli eitt,tvö og þrjú.Er Svandís raunverulega að segja að Samfylkingin muni svíkja ESB loforðið strax eftir kosningar.

Það var skrítið að heyra Svandísi Vinstri grænum segja það í kvöld að hún tryði því ekki að Samfylkingin léti stefnu sína um aðildaviðræður við ESB verða til þess að koma í veg fyrir ríkisstjórnarsamstarf þessara flokka.

Hvað er Svandís að segja?

Hún trúir því ekki að eitthvað sé að marka orð Samfylkingarinnar að nú strax í sumar verði að hefja aðildarviðræður við ESB.

Hún gefur frat í það sem Samfylkingin segir að ESB málið sé númer eitt,tvö og þrjú.

Eru kjósendur virkilega tilbúnir til að greiða þessum flokkum sitt atkvæði sem trúa ekki að flokkarnir ætli að standa við sín kosningaloforð.


mbl.is Trúi ekki að Samfylkingin láti stranda á ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Illa upplýstir frambjóðendur.

Svandís veit þó hvað hún er að tala um varðandi ESB aðildarumsókn. V-G,  Frjálslyndir og Sjálfstæðisflokkur gera sér grein fyrir því hvað ESB stendur fyrir.

Hinir flokkarnir nálgast ESB af fullkomnu þekkingarleysi og  ætla bara að prófa að ræða við risann og sjá til hvað hann býður. Hvar hafa þessir frambjóðendur haldið sig undanfarin ár? Hafa þeir ekkert fylgst með fréttum af spillingu og valdníðslu ESB? Hafa þeir ekki hlustað á gagnrýnisraddir almennings í aðildarlöndunum? Að halda það að ESB sé að bjóða íslendingum einstök kjör sem önnur ríki ESB geta ekki látið sig dreyma um, er álíka heimskulegt og að prófa að tala við Kínverja og bandaríkin og sjá til hvort að þessi ríki bjóði íslendingum einhverskonar aðildarsamninga sem eru gjörsamlega frábrugðin allri stefnu þeirra.

Það verður þokkalegt þegar að íslendingar verða kallaðir í ESB herinn sem rætt er um að stofna, og ekki veitir af Evrópuher eftir að Tyrkland er komið inn í ESB, því þá liggja landamæri hinnar sameinuðu Evrópu að Íran og Írak!

En hvað með það þó svo að íslendingar verði í framtíðinni að gegna herskyldu vegna fáfræði Framsóknaflokks Borgarahreyfingarinnar, Samfylkingarinnar og Lýðræðishreyfingarinnar? Við fáum þó Evru! En mun evran lifa kreppuna af?  Af hverju ekki að bíða með gjaldmiðlaskipti þar til að við erum búin að ná okkur upp úr botninum og heimskreppan gengin yfir? Þá væri upplagt að taka upp þann gjaldmiðil sem er hægt að treysta til framtíðar.

Guðrún Sæmundsdóttir, 23.4.2009 kl. 10:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband