13% stýrivextir í engri verðbólgu.Hvað varð um djörfu lækkunina? Sá norski og Davíð með sömu stefnuna.

Margir voru að gera sér grein fyrir að mjög stórt stökk yrði nú tekið í lækkun stýrivaxta. Ég heyrði í morgun í Pétri Blöndal og Atla Gíslasyni þar sem þeir töluðu um að stýrivextir þyrftu að fara í 5%.

Áður voru rökin sú að stýrivextir mætti ekki lækka mikið því verðbólgan væri svo há. Nú er algjör stöðnun,engin verðbólga. Samt erum við með stýrivexti uppá 13%.

Það liggur alveg ljóst fyrir að atvinnulífið mun ekki hressast á meðan vextir eru svona háir.

Besta hjálpin til flestra heimila væri lækkun vaxta.

Davíð Oddsson fyrrum Seðlabankastjóri var harðlega gagnrýndur fyrir stjórn peningamála í Seðlabankanum og að vilja halda stýrivöxtum háum.

Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. hljóta að velta því fyrir sér hvort sá norski í Seðlabankanum sé ef til bara norska útgáfan af Davíð.

En kannski ræður sá norski engu um vaxtastefnuna,kannski ráða Jóhanna og Steingrímur engu um peningastefnuna. Er það bara ekki Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sem í raun stjórnar landinu. Af þeirri ástæðu geta Jóhanna og Steingrímur setið á fundum til að ræða öll önnur mál en þau sem skipta mestu við að mynda ríkisstjórn.

Þessi vaxtalækkun mun ekki auka bjartsýni meðal landsmanna.


mbl.is Stýrivextir lækka í 13%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband