Nú hlýtur afturhaldsliðið í Vinstri grænum að gleðjast.

Alveg er það stórfurðulegt að til skuli vera stjórnmálaflokkur hér á Íslandi,sem leggst gegn öllu sem mætti vera til framfara í landinu.Fáránlega afturhaldssemi og skattastefnupólitík VG verður nú til þess að erlend fyrirtæki setja allt í biðstöðu varðandi stór verkefni hér á landi.

Var það þetta sem við þurftum til að bæta efnahagsástandið?

Það er skelfilegt að stefna VG skuli fá að ráða í landinu. þeir leggjast gegn fínum tækifærum til að byggja upp atvinnulífið sem dregur úr atvinnuleysi og skapar verðmæti og erlendan gjaldeyri.

Það er skelfilegt að skattastefna Vinstri grænna skuli ráða í landinu. Hvernig á það að ganga miðað við ástand mála að ætla að leysa vandamálið með aukinni skattheimtu á einstaklinga og fyrirtæki.

Flestir sjá að það mun ekki leysa neitt heldur auka á vandann.

Það sem okkur vantar er fjárfesting erlendis frá til að byggja upp öflugra atvinnulíf. Það mun væntanlega ekki gerast á meðan VG stjórnar landinu.


mbl.is Í bið vegna orkuskatts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórhildur Daðadóttir

Já þeir hljóta að vera kátir. En ekki er ég það.  Þessi orkuskattur gæti riðið heilu byggðarfélögum að fullu. Þar sem uppbygging þjónustu byggist í kring um orkufyrirtæki, og fari þau yfir um þá náttúrulega hafa þau ekki þörf fyrir þjónustu lengur.

Þetta er uggvænleg þróunn.

Þórhildur Daðadóttir, 26.10.2009 kl. 12:25

2 Smámynd: Offari

Biðstaðan er eðlileg meðan óvissan ríkir. Ég tel því óhjákvæmanlegt að ríkisstjórnin klári annað hvort þennan orkuskatt eða hafni honum í hvelli. Óvissan er mun verri en vissan. Það er hinsvegar nokkuð ljóst að auka þarf skattpíninguna en hvaðan á að taka hana veit ég ekki.  Verður tildæmis sykurskatturinn til þess að neysla dragist það saman að gosdrykkjaframleiðendur fari í þrot og segi upp starfsfólki.

Fælir hóflegur orkuskattur erlenda fjárfesta frá? Það held ég ekki en óvissan fælir hinsvegar frá.

Offari, 26.10.2009 kl. 13:08

3 identicon

orkuskattur það væri gaman að vita hver áætlaður orkuskattur væri fyrir þesssi 7 fyrirtæki og sja hvernig það vegur upp á móti sköttunum sem þeir borga og skatt starfsmanna þessara 7 fyrirtækja en þessir grænu vilja koma i veg fyrir allar framkvæmdir ekki ber a öðru  

bjarki mar (IP-tala skráð) 26.10.2009 kl. 16:33

4 Smámynd: Stefán Stefánsson

Er þetta ekki bara samkomulag í ríkisstjórninni að Samfylkingin lofar VG að stoppa alla uppbyggingu gegn því að þeir samþykki einstefnuna inn í ESB?
Meðan þessi ríkisstjórn situr mun alltaf verða óvissa vegna þess að það er aldrei hægt að vita upp á hverju þeir taka og ef heldur fram sem horfir fæla þeir alla frá því að hugsa um einhverja uppbyggingu hér....

Stefán Stefánsson, 26.10.2009 kl. 19:55

5 identicon

Snjalli Siggi !

 V-grænir sannir afkomendur Alþýðubandalagsins ( gömlu kommanna).

 Í ár ,aldarfjórðurngur frá því Jónas nokkur Árnason alþingismaður Allaballa fór upp á Grundartanga.

 Til að gera hvað ?

 Jú reisa NÍÐSTÖNG til mótmæla komandi álveri !

 " Þegar ég hlustaði á ræðu félagsmálaráðherra, fór um mig KALDUR HROLLUR ! - sagði formaður Verkalúðsfélags Akraness í gær.

 Hann bætti við að iðjuverin á Hvalfjarðarströnd skapi 3000 - þrjú þúsund manns  - atvinnu !

 "Hvað varðar mig um þjóðarhag" sagði Þóroddur "kommi" á Siglufirði  á sínum tíma.

 Já, hvað varðar þessu hryjðuverkafólki um þjóðarhag ? !

Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 26.10.2009 kl. 20:44

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Dettur þér í hug, Sigurður minn, að enginn þurfi að borga fyrir frjálshyggju- og álverafyllirí Sjálfstæðisflokksins frá 1991 fram á haust 2008?

Ég er satt að segja undrandi á belgingnum í ykkur sjálfstæðishetjunum. Venjulegt fólk myndi skammast sín í ykkar sporum því þið hafið ekki nein efni á að gagnrýna og óskapast yfir þeim sem eru að reyna að hreinsa upp drulluna eftir ykkur.

Jóhannes Ragnarsson, 26.10.2009 kl. 21:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 828248

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband