Nú er Davíð Oddssyni skemmt.

Davíð fyrrum Seðlabankastjóri og núverandi ritstjóri Moggans hlýtur að skemmta sér vel yfir vandræðagangi Jóhönnu með Seðlabankann. Jóhanna hefur aldrei unnið eins vel í nokkru máli og beitt miklum hraða við að losna við Davíð úr stól Seðlabanka.

Eftir að Jóhanna gat sett sinn mann í Seðlabankann gerast þau óskup að hann hefur ekki einu sinni fyrir að senda Jóhönnu lögfræðiálit sem skipti ansi miklu máli hvað varðar gengistryggingu lána.

Ætlar Jóhanna nú að sitja uppi með það að í Seðlabankanum sé bankastjóri sem telur enga þörf að láta hana vita um málin.

Jóhanna, getur þá áfram sagt eins og hún hefur alltaf sagt. Ég veit bara ekkert um málið.

Já, Davíð hlýtur að veltast um í hláturskasti.


mbl.is Krafðist skýringa frá Seðlabankanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Þetta er að verða dulítið pínlegt.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 16.8.2010 kl. 21:39

2 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Það verður prófsteinn á manninn hvort hann lætur sér nægja að gera eins og Marbendill og hlæja með sjálfum sér, eða fara mikinn og básúna ávirðingar alþýðustjórnarinnar.

Flosi Kristjánsson, 16.8.2010 kl. 22:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 828262

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband