Gott útspil hjá Bjarna. Nú reynir á samstarfsvilja Jóhönnu og Steingríms J.

Það er skynsamlegt hjá Bjarna formanni Sjálfstæðisflokksins að segjast tilbúin í að mynduð verði verkefnastjórn í stað Vinstri stjórnarinnar,sem nú situr. Verkefnastjórn yrði skipuð fulltrúum allra flokka og aðeins til að leysa brýnustu hagsmunamál heimila og fyrirtækja.Verkefnastjórnin þyrfti einnig að hafa aðra hugsun en VInstri stjórnin í atvinnuuppbyggingu.

Jóhanna hefur boðað að hún vilji samstarf allra flokka og hún sé reiðubúin að taka allar hugmyndir að lausn mála til skoðunar. Skynsamlegast að það verði gert með því að setja á laggirnar verkefnastjórn.

Eftir að sú stjórn hefur lokið við sitt verkefni yrði boðað til kosninga.

Nú reynir á Jóhönnu og Steingrím J. hvort einhver alvara er á bak við þeirra orða að það sé nauðsynlegt að ná sátt í þjóðflaginu um aðgerðir.


mbl.is Ný verkefnisstjórn taki við völdum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Ég verð nú að játa að hann fær plús fyrir það, Sigurður.  Hefur þótt hann vera alltof mikill 50/50 stórnmálamaður.  Ekki hafa haft nógu einarða stefnu í neinum málum.  Ekki einu sinni gegn Icesave þó flokkurinn hafi boðað það fyrir nokkru. 

Elle_, 9.10.2010 kl. 22:42

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Hef ekki mikkla trú á orðum Jóhönnu og Steingríms, en verði af svona stjórn þá þarf fólk með bein í nefinnu til að ráða við það fláræði sem þrífst í núverandi stjórnarflokkum, eða slíta samstarfinnu ella.

Hrólfur Þ Hraundal, 9.10.2010 kl. 22:58

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

   Þetta er bráð aðkallandi, það verður ekkert úr neinu,nema þessi verkefnastjórn komist á laggirnar hið fyrsta.Brýnastu verkefnin verður að leysa,það ætti ekki að vera svo mikið að karpa um,allir með.

Helga Kristjánsdóttir, 10.10.2010 kl. 01:26

4 identicon

Ætli Bjarni Vafningur Benediktsson hafi verið að fatta þetta núna að ný verkefnisstjórn eigi að taka við í landsmálunum.?Þjóðin er búin að vita þetta lengi.Bjarni Vafningur er ekki að koma með neitt nýtt fram.

Númi (IP-tala skráð) 10.10.2010 kl. 10:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 828257

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband