Davíð Oddsson,Ólafur Ragnar og Ingibjörg Sólrún orðnir samherjar.

Pólitíkin er oft óútreiknanleg. Það hefðu fáir trúað því að eiga eftir að upplifa að Davíð,Ólafur Ragnar og Ingibjörg Sólrún gerðust samherjar í pólitíkinni. Það er nú engu að síður staðreynd. Þau þrjú hafa öll unnið að því að bjarga þjóðinni frá þvi að sitja uppi næstu áratugina með að þurfa að greiða Icesave.

Hjá þeim þremur hefur komið fram að Íslendingum beri engin skylda að taka á sig skuldir sem einkabanki stofnaði til.

Kjósendur hljóta að hlusta á þessa þrjá fyrrverandi forystumenn úr stjórnmálunum, sem ekki hafa verið þekkt fyrir neinn sérstakan vinskap sín á milli eða samstöðu í málunum, en þegar kemur að Icesave eru þau öll sammála. Almenningi á Íslandi ber ekki nein skylda til að greiða Icesave.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mér er sama hvaðan gott kemur.  Hjá mér gilda málefnin en ekki fólkið.  Ég er því ánægð með afstöðu þessa fólks til Icesave, því ég VIL ALLS EKKI BORGA  þessa kröfu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.2.2011 kl. 13:59

2 identicon

Finnst þér þetta ekkert segja um það að kannski sé málstaður þeirra núna vafasamur?

ábs (IP-tala skráð) 28.2.2011 kl. 15:05

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei ég er á þeirri skoðun að við eigum ekki að borga þessa kröfu og að við eigum að vera óhrædd við að leggja málið fyrir dómstóla.  Ég er sannfærð um að við eigum ekki að borga þetta.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.2.2011 kl. 20:25

4 identicon

Var það þetta sem sem Geir óttaðist þegar hann bað guð að blessa Ísland

Haraldur Karlsson (IP-tala skráð) 28.2.2011 kl. 21:13

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei ég held ekki, Geir er í þessu máli kjáni og hefur enga yfirsýn yfir málin.  Það er mín skoðun.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.2.2011 kl. 22:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 828286

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband