Rýtingur í samstöðu

Græðgin á sér líti takmörk.Það sannast nú á þessum erfiðu tímum í íslensku þjóðfélagi. Nokkur stór og sterk fyrirtæki ákváðu að notfæra sér hlutabótaleið ríkisstjórnarinnar og ná sér í fjármuni úr ríkissjóði. Þetta gera fyrirtækin á sama tíma og þau eiga digra sjóði og greiða eigendum sínum arð. Það er rétt hjá Bjarna Benediktssyni að þessi fyrirtæki reka rýting í þá samstöðu sem ríkt hefur í landinu.

Í viðtali nú á dögunum segir einn af forstjórum eins af stærstu fyrirtækjarisans þegar hann var spurður gagnrýnum spurningum hvers vegna þau væru að sækja peninga úr ríkissjóði. Jú,ástæðan var að ein verslun þurfti að loka á Keflavíkurflugvelli. Fyrirtækjasamstæðan skilar samt hagnaði upp á 7 milljarða oggreiðir hluthöfum arð. Forstjórinn viðurkenndi að til væru digrir sjóðir. Hvers konar siðferði er þetta þá, að sækja peninga úr ríkissjóði.

Þetta er rýtingur í bakið á launþegum,sem hafa skapað hagnað þessara fyrirtækja. Þarf nokkur að vera undrandi á að láglaunafólk  hneykslist og telji það réttmætar kröfur að fá hærri laun.

Nú reynir á ríkisstjórnina að sjá til þess að fyrirtæki sem hafa misnotað aðstoðarpakka ríkissjóðs verði látin borga til baka þá fjármuni,sem þau þurftu sannarlega ekki á að halda frá ríkissjóði.

Skeljungur hefur endurskoðað sína ákvörðun og greitt til baka. Það hlýtur að vera krafa allra að önnur fyrirtæki sem eru að misnota aðstöðina endurgreiði einnig.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nokkur stór og sterk fyrirtæki ákváðu að segja ekki upp fólki sem ekki var þörf fyrir heldur fara að yfirlýstum vilja stjórnvalda og minnka frekar starfshlutfall og halda ráðningarsambandi við starfsmennina. Stjórnvöld buðust til að borga starfsmönnum mismuninn úr ríkissjóði svo þeir yrðu ekki fyrir kjaraskerðingu. Starfsmenn héldu sínum áunnu réttindum og héldu áfram að safna réttindum sem ekki hefði verið raunin hefðu þeir farið á atvinnuleysisbætur. Þetta gerðu fyrirtækin þó það kosti þau meira en ef uppsagnaleiðin hefði verið farin. Sé ekki lengur vilji hjá stjórnvöldum að fyrirtækin haldi í starfsmenn meðan þetta ástand gengur yfir þá eru uppsagnir rökrétt og eðlilegt framhald. 

Stjórnvöld greiddu starfsmönnum en ekki fyrirtækjunum og þurfa því að sækja endurgreiðslur til þeirra.

Vagn (IP-tala skráð) 8.5.2020 kl. 14:58

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Var það ekki krafa ríkisstjórnarinnar að þau fyrirtæki sem nýttu sér hlutabótaleiðina greiddu ekki út arð, alla vega í einhvern tíma???

Tómas Ibsen Halldórsson, 8.5.2020 kl. 15:32

3 identicon

Það var ekki krafa ríkisstjórnarinnar að þau fyrirtæki sem nýttu sér hlutabótaleiðina greiddu ekki út arð, alla vega í einhvern tíma. Enda var hlutabótaleiðin til þess að fyrirtækin segðu ekki upp óþörfum starfsmönnum og starfsmenn yrðu ekki fyrir kjaraskerðingu. Hlutabótaleiðin gagnaðist fyrst og fremst starfsmönnum og miðaðist við að þeir héldu vinnu þó ekki væri þörf á þeim næstu mánuðina. Það sem verið er að segja núna um hlutabótaleiðina stangast á við það sem bæði vinnumálastofnun og Bjarni Ben hafa sagt.

Vagn (IP-tala skráð) 8.5.2020 kl. 15:49

4 identicon

Hagar hafa endurgreitt vinnumálastofnun og allir starfsmenn eru komnir aftur í 100 % vinnu. Ef fyrirtækið hefði farið hlutabótaleiðina hefur það ekki átt rétt á nema 25% vinnuframlag frá starfsmönnum. Dæmið heði litið eins út ef það hefði sagt upp 75% starfsmanna nema að því undanskyldu að það hefði þá þurft að greiða uppsagnarfrestinn. Þar sem ekki er liðið lengra frá því þessi leið var í boði er rétt að fyrirtækið endurgreiði.

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 8.5.2020 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 828342

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband