HORFUM TIL FRAMTÍÐAR. HUGSUM STÓRT.

Allt stefnir í að meistaraflokkur ÍBV leiki í efstu deild á næsta ári. Allt stuðningsfólk ÍBV fagnar þessu,því Eyjamenn eiga hvergi heima nema meðal þeirra bestu.Til hamingju Heimir þjálfari og allir í liðinu,til hamingju með glæsilegan árangur.

Nú heyrir maður og sér að KSÍ gerir auknar kröfur til áhorfendastúku og eflaust einhver fleiri atriða eigi liðið að fá að leika heimaleiki sína á Hásteinsvelli.

Að mörgu leyti finnst mér skiljanlegt aðm Eyjamönnum finnist óþarfi að vera að setja fjármuni í þennan aðbúnað,völlurinn sé glæsilegur og það ætti bara að vera nóg. Jú,ósköp var nú þægilegt að sitja norðan megin í grasinu með sitt teppi og horfa á leikina. Ekki fannst manni neitt að þessu.

En tímarnir breytast og kröfurnar aukast. Þetta sér maður á öllum sviðum. Það er gífurlega mikið atriði fyrir sveitarfélag að eiga afreksmenn eins og meistaradieldarlið ÍBV. Þar skapast fyrirmyndin hjá unga fólkinu. Það sýndi sig best núna á dögunum hvers konar vítamínsprauta árangur íslenska handboltaliðsins er fyrir allt íþróttalíf í landinu.

Knattspyrnulið í efstu deild eflir samstöðu og samhug Eyjamanna,ekki bara í Eyjum heldur um allt land.

Mér finnst að það verði að horfa til framtíðar,ekki bara næstu tveggja eða þriggja ára.Eyjamenn eiga að horfa til framtíðar.Horfa á  til næstu 20 eða 30 ára.Framundan er bylting í samgöngumálum,sem getur orðið mikil lyftistöng fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum.Það á að hugsa stórt. Bæjarsjóður er nú í allt annarri stöðu heldur en áður. Í mínum huga er það ekki nokkur spurning að það á að gera alla umgjörð um Hásteinsvöllinn sem glæsilegasta þ.m.t. yfirbyggðri stúku. Stefnan hlýtur að vera tekin á að meistaradeild karla í ÍBV leiki sem lengst í efstu deild. Það eru líka til fleiri lið í Eyjum en karlaliðið. Kvennaboltinn á örugglega eftir að eflast ásamt yngri flokkunum.

Eyjamenn,horfið vel til framtíðar og hugsið stórt. Notið tækifærin sem blasa við.


mbl.is KSÍ: „Alrangt að byggja þurfi 700 manna stúku"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigþóra Guðmundsdóttir

Sæll Siggi!

Framtíðin hlýtur að felast í betri aðstöðu til iðkunar, sbr. knattspyrnuhús, þó það mætti vera stærra eða í það minnsta stækkanlegt, fyrir minn smekk!

Ég get alveg horft á knattspyrnu í rigningu, blotnað smá, (það fylgir því að vera úti í rigningu) þessa 20+ leiki á ári, í karla og kvenna (vona samt að það eigi ekki eftir að rigna á öllum þeirra). Ég hugsa meira að segja að ég þoli það að blotna næstu árin, jafnvel út mína ævi!

Jú, það er rétt, bæjarfélagið er aðeins betur í stakk búið núna, fjárhagslega séð, en það breytir því ekki að önnur þjónusta er mikilvægari... og hana virðist eiga að skera niður á næstunni, miðað við það sem maður sér og heyrir. Ekki býð ég í enn lægra þjónustustig á kostnað yfirbyggðar stúku!

kv. Sigþóra, gamall nemandi!

Sigþóra Guðmundsdóttir, 29.8.2008 kl. 18:11

2 Smámynd: Sigurður Jónsson

Sæl Sigþóra.

Gaman að heyra frá þér. Eins og ég skrifaði fannst mér ekkert að því að sitja á teppi undir berum himni og horfa á leikina.En tímarnir breytast og alls konar kröfur eru gerðar í dag sem ekki þurfti að uppfylla áður. Nú sjáuum við fram á nýja tíma í samgöngumálum til Eyja. Það verður þá ekki mikið mál fyrir fólk á fastalandinu að skjótast og horfa á leiki á Hásteinsvellinum.

Auðvitað á að leggja áherslu á flotta aðstöðu til íþróttaiðkunar,en ég held að bæjarsjóður hafi nú góða möguleika á að bæta aðstöðuna á öllum sviðum. Hugsið stórt í þessum málum og horfið svolítið fram í tímann ekki bara til næstu tveggja eða þriggja ára.

Bestu kveðjur til Eyja.

Sigurður Jónsson, 30.8.2008 kl. 00:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 828274

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband