Raddir fólksins til Bessastaða með potta og pönnur ??

Það er ekki í fyrsta skipti sem viðtöl við Ólaf Ragnar við erlenda fjölmiðla valda miklu fjaðrafoki. Það hlýtur að vera mikið umhugsunarefni fyrir alla að forseti landsins sem ekki gegnir pólitísku hlutverki(eða hvað?) skuli sífellt blanda sér í stjórnmálaumræðuna.

Hvers vegna telur forsetinn það sitt hlutverk að vera helsta talsmann Bessastaðastjórnarinnar?

Er það vegna þess að hann lagði línurnar sjálfur og átti meiri þátt í stjórnarmynduninni en fram hefur komið? Sumir halda því fram.

Finnst Herði Torfasyni og félögum ekki full ástæða að skunda nú á Bessastaði og lemja pönnur og potta og mótmæla þessum sífelldu afskiptum forsetans af stjórnmálunum.

Er ekki full ástæða fyrir Raddir fólksins að beina spjótum sínum að fleirum en Davíð Oddssyni einum.


mbl.is Forseti Íslands sendir yfirlýsingu til þýskra fjölmiðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Þórðarson

Bessastaðabóndinn að bullar mikið núna

Hann er að verða vitlau því vitið vantar í frúna

Það gerir ekkert til það gerir ekkert til

Þau fara á skíði um miðvetrarbil

Gunnar Þórðarson, 10.2.2009 kl. 18:23

2 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Trommusettin á Bessastaði, ekki spurning.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 10.2.2009 kl. 20:59

3 identicon

Af hverju lalliði ekki bara þangað sjálf?

Jóhannes (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 22:12

4 Smámynd: Stefanía

Hann er líka fljótur að sópa fiðrinu saman og fela það , setur síðan upp sakleysissvipinn þegar hann er krafinn skýringa. Allt tómur misskilningur....eða þannig !

Stefanía, 10.2.2009 kl. 22:44

5 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Já er ekki kominn tími til að fjölmenna með potta, pönnu, sleifa og trommusettin að Bessastöðum og þó fyrr hefði verið. Ef einhver eykur á vanda þjóðar okkar þá er það munnurinn á ORG

Tómas Ibsen Halldórsson, 11.2.2009 kl. 00:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 828286

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband