Hvernig getur mönnum dottið í hug að Vinstri grænir úthluti pólitískum bitlingi?

Alveg er ég hreint undrandi á því að fólki skuli virkilega detta í hug að Vinstri grænir ætli sér að úthluta Kolbrúnu Halldórsdóttur pólitískum bitlingi og ráða hana sem Þjóðleikhússtjóra.Auðvitað datt hún af þingi og fékk ekki að halda ráðherrasætinu en að ræða um úthlutun á pólitískum bitlingi er af og frá. Vinstri grænir hafa alla tíð gagnrýnt stjórnvöld fyrir slík vinnubrögð þ.e. að flokkarnir séu að koma sínum nánustu í feit embætti.

Ég skil þess vegna ekki í nokkrum manni að láta sér detta í hug að Vinstri grænir vinni þannig. Reyndar bauð nú Steingrímur J. honum Guðjóni Arnari formanni Frjálslynda flokksins vinnu í Sjávarútvegsráðuneytinu af því hann hafði fallið af þingi. En það var nú ekki á flokkslegum nótum heldur á samtryggingarnótum.

Merkilegt reyndar virðist alveg eins reikna með að fá embættið. Ég sá í fjölmiðlum að núverandi Þjóðleikhússtjóri hefur áhuga á embættinu áfram. Er einhver ástæða að hrekja hana úr embættinu. Er hún kannski ekki nógu vinstri sinnuð og græn á ltinn?


mbl.is Kolbrún í Þjóðleikhúsið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorvaldur Guðmundsson

Sigurður andaðu með nefinu hún er nú ekki einu sinni búinn að sækja um. Það er alveg merkilegt að ef einhverjir aðrir en sjálfstæðismenn fá pólitíska bitlinga þá farið þið úr límingunum

Þorvaldur Guðmundsson, 11.5.2009 kl. 16:01

2 identicon

Sæll Siggi.

Það er greinilegt að þú þekkir ferilinn sem fyrverandi (vonandi ) pólitíkus.

Þessi leikur hefur nú lengi loðað við ykkur sjálfstæðismenn svo þú veist hvernig ferillinn er.

kv Hjalti frá Varmadal.

Hjalti Elíasson (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 18:51

3 identicon

Hvað gerði samspillingin fyrir kerfiskerlinguna Ástu Ragnheiði tróðu þeir henni ekki í forsetastól Alþingis eftir að kjósendur höfnuðu henni og að þeir vildu ekki sjá hana í neinu trúnaðarstarfi hjá ríkinu,enda búin að vera eins og sníkill á ríkissjóði í áratugi eins og flestir hennar flokksfélagar.Og ekki eru VG skárri,vertu viss Kolla kerling verður komin í þjóðleikhúsið í haust.

magnús steinar (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 19:29

4 identicon

Margur heldur mig sig?

ASE (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 20:14

5 Smámynd: Sigurður Jónsson

Hjalti. Miðað við dýrkun Samfylkingarinnar á gömlum stjórnmálamönnum get ég alveg reiknað með að eiga þó nokkur ár eftir í stjórnmálunum. Ég segi eins og konan, minn tími mun koma aftur.

Sigurður Jónsson, 11.5.2009 kl. 21:32

6 Smámynd: Dunni

Ég skil það vel að þér detti ekki í hug að VG úthluti pólitískum bitlingum. Það hugtak er nefnilega ekki til meðal sjálfstæðismanna. En ef það skyldi vera til þá skortir margan sjálfstæðismanninn greind til að koma auga á það.  Kannski er það þannig með þig.  Held samt ekki.

En þekkir þú ekki sjálfstæðismanninn, Gunnar Birgisson.  Mig minnir að hann hafi staðið hvað harðast gegn pólitískum bitlingum. Einkum þegar dóttir hans á í hlut. 

Dunni, 12.5.2009 kl. 10:23

7 Smámynd: Drífa Kristjánsdóttir

Gat ekki á mér setið.  Ég lít stundum á skrif þín til að skoða hvort þau endi ekki heldur betur en þau byrja.  Nei alltaf sama nöldrið og neikvæðnin.  Athugasemdir þínar virðast alltaf hitta þig sjálfan verst.  Ja hérna...

Drífa Kristjánsdóttir, 12.5.2009 kl. 11:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 828286

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband