Þingmenn Vinstri grænna.Styðjum ríkisstjórnina en erum samt á móti henni.

Merkilegt er að heyra yfirlýsingar nokkurra þingmanna Vinstri grænna þegar þeir hamast við að gefa út yfirlýsingar að þeir styðju ríkisstjórnina en í leiðinni lýsa þeir yfir að þeir séu á móti henni í stóru málunum.

Ekki bendir brottrekstur Ögmundar úr Vinstri stjórninni að mikið sé hlustað á hans sjónarmið og að það standi yfir höfuð eitthvað til að hlusta á hann.

Hvernig á stjórnin að lifa ef Ögmundur og félagar í Vinstri grænum ætla að vera á móti því að fallast á skilyrði Breta og Hollendinda vegna Icesave.

Ögmundur boðað nú að við eigum að snúa baki við Alþjóðagaldeyrissjóðnum. Allt útlit er fyrir að meirihluti sé fyrir þeirri skoðun meðal alþingismanna. Hvernig á Vinstri stjórnin þá að geta starfað áfram.

Það hlýtur að draga til tíðinda á fundi VG í kvöld. Það getur ekki gengið til lengdar að segjast styðja ríkisstjórnina en vera samt á móti henni.


mbl.is Þingflokkur VG fundar í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Ég held að hún sé fallin. En hvað sem tekur við þá má það ekki spegla síðustu vinnubrögð umhverfisráðherra.

Kveðja.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 7.10.2009 kl. 13:25

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Án þess að ég viti það dettur mér í hug að stjórnin í heild sinni sé á móti ofuöflum kúgunar í þessu landi.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.10.2009 kl. 13:59

3 identicon

Það eina sem límir þessa ríkisstjórn saman, er hatrið í garð Sjálfstæðisflokksins. Að fyrirbyggja að hann komist til valda,-  hinsvegar eiga Vinstri grænir enga samleið með Samfylkingunni, sem veður yfir þá á skítugum skónu, trekk í trekk. Kannski finnst vinstri grænum nú komið nóg og vilja fara út úr ríkisstjórninni.

Gísli Valtýsson (IP-tala skráð) 7.10.2009 kl. 17:41

4 identicon

Þú hefur nú ekki mikla reynslu af  pólitíkinni, ef þú skilur þetta ekki :)

sigurður helgason (IP-tala skráð) 7.10.2009 kl. 18:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 828262

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband