Nú kennir Jón Ásgeir systur sinni um.

Jón Ásgeir hefur í gegnum tíðina verið drjúgur að kenna öðrum um hversu illa er komið fyrir hans fyrirtækjum og reyndar honum sjálfum. Lengst hefur aðalóvinur Jóns Ásgeir verið Davíð Oddsson. Jón Ásgeir hefur dregið upp þá mynd að helsta starf Davíðs alla daga hafi verið að finna einhver ráð til að klekkja á sér. Einnig var Sjálfstæðisflokkurinn altaf að eyðileggja allt fyrir Jóni Ásgeiri. Það virðist alls ekki hafa verið til í orðabók Jóns Ásgeirs að hann ætti nú kannsi mesta sökina á því sjálfur hvernig komið er.

Nú held ég að almenningur hljóti að sjá´hvernig vinnubrögð Jóns Ásgeir notar. Nú ætlar hann að kenna systur sinni um og heldur því fram að hún hafi falsað sína undirskrift. Er nú ekki fulllangt gengið? Ótrúlegt finns mér að löglærð kona eins og systir hans beiti slíkum vinnubrögðum.

En endilega að halda áfram að styrkja  fjölskylduna  og versla í Bónus.


mbl.is Systkinin ósammála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki hefur nú Jóhannes nú verið síðri í að væla og kenna öðrum um.

Grímur (IP-tala skráð) 19.7.2010 kl. 13:35

2 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Það hlýtur nú að vera lítið mál að skoða undirskriftir þeirra systkyna, vegna annarra mála og komast að hinu sanna í málinu.  Hafi systirin, skirfað nafn Jóns Ásgeirs, hvort sem það hafi verið með eða án hans vitundar, þá er það alltaf skjalafals.   Refsing fyrir skjalafals, getur numið allt að átta árum.

Kristinn Karl Brynjarsson, 19.7.2010 kl. 13:41

3 identicon

Þetta gengur vonum framar.  Þegar grunaðir glæpamenn fara að svíkja hvern annan, þá er stutt í endalok glæpastarfseminnar hjá þeim og að réttlætið sigri.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 19.7.2010 kl. 13:53

4 identicon

Þegar glæpamenn komast í vanda, þá fara þeir að kenna öðrum um... Allir sem vita eitthvað verða að koma fram og segja frá... annars gætu menn lent í fangelsi, misst mannorðið...

doctore (IP-tala skráð) 19.7.2010 kl. 15:54

5 identicon

Mikið eru þessi ærulausi maður farinn að grípa til aumkunarverðra aðferða til að verja sig.

Hann virðist ekki skilja að leikurinn er búinn hjá honum. Jón skuldar þúsund milljarða+ og mun aldrei ná að borga þær skuldir.

Hann hefur náð að koma frá sjóði til mögru áranna sem nú eru framundan og rær lífróður til að bjarga því frá slitastjórn Glitnis sem með aðstoð Kroll eltir hann uppi eins og hund.

Jón skilar pappírum til réttarins í New York þar sem hann segist eiga 1 milljón punda í eignum og peningum, sem er ein grófasta lygi sem frá þessum manni hefur komið.

Enda hefur maðurinn setið sveittur við að koma eignum undan, þar á meðal á konu sína og aðra fjölskyldu meðlimi.

Þú ert hundingi Jón Ásgeir. Ærulaus maður.

Eigðu skömm fyrir það sem þú hefur gert íslensku þjóðinni og hér á landi ertu ekki og verður ekki velkominn í framtíðinni.

-

Íslenskur skattborgari.

Skattborgari (IP-tala skráð) 20.7.2010 kl. 13:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband