Á að svelta Jón Ásgeir?

Frægt varð svar Jóns Ásgeirs þegar hann var spurður um sína fjárhagsstöðu. Hann sagðist ánægður ef hann ætti fyrir Diet Coce. Nú virðast einhverjir vondir karlar ætla gjörsamlega að koma í veg fyrir að Jón Ásgeir geti einu sinni látið sína einu ósk verða að veruleika. Vondu karlarnir ætla að taka alla peningana og frysta þá. Hvað á Jón Ásgeir þá að drekka. Mun hann sætta sig við kranavatnið og ekkert annað?

Eins og alþjóð veit er ekkert Jóni Ásgeiri og þeim Baugsmönnum að kenna. Það er bara vonda fólkið sem alltaf er að ráðast á hann og hans fjölskyldu og svo auðvitað Sjálfstæðisflokkurinn í heild sinni.

Nú er spurning hvort almenningur í landinu verður ekki að taka sig saman og hver og einn almennur borgari sendi Jóni Ásgeiri eina Diet Coce. Ekki getum við hugsað okkur að þessi einskæri vinur alþýðunnar fái engan bónus fyrir allt sem hann hefur gert fyrir hinn venjulega Jón í landinu.

Nei það er sko ekki sama að vera Jón eða Jón Ásgeir.

 

 


mbl.is 585.648 bresk pund kyrrsett
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Ég væri til í að gefa honum eina og eina Diet Coce ef hann er blankur ræfillinn.

Jón Ríkharðsson, 31.7.2010 kl. 01:36

2 Smámynd: A.L.F

æjæj

greyið Jón Ásgeir.

Litla skinnið er bara komin í sömu stöðu og margur er ég þekki. Ekki til penge fyrir diet coke, það fólk á reyndar heldur ekki peninga til að kaupa núðlur fyrir börnin sín svo kannski hefur það ögn verra en fórnarlambið.

A.L.F, 31.7.2010 kl. 02:19

3 identicon

Haldiði virkilega að hann sé og frúin séu á flæðiskeri með fé ??

Dau voru að ferðast á Saga Class fyrir nokkrum dögum, fór ekki mikið fyrir þeim en þessu pakki vantar ekki peninga !

Síst af öllu meðan fólk verslar við þau einsog ekkert sé !

afb (IP-tala skráð) 31.7.2010 kl. 09:00

4 Smámynd: K.H.S.

Þess verður ekki langt að bíða að heimatilbúnir verðlauna, rit og skífu metsölhöfundar Hagkaupa og Bónuss fari að gefa honum ættjarðarástarstimpil. Þetta var allt gert af ást og umhyggju fyrir ykkur, en bölvaldurinn Davíð Oddsson eyðilagði allt." Maður sér fyrir sér snillinga eins og Guðmund A. Th. og Bubba Morthens í kerfisbundinni röð viðtala við álíka ofanfatlaða stráklinga (hvers eiga aumingja smátussurnar að gjalda) á svokölluðum fjölmiðlum fara um manninn rannsökuðum hæstaréttarorðum og vitna um hanns ágæti.

K.H.S., 31.7.2010 kl. 10:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 828294

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband