Hrollur hlýtur að gera vart við sig hjá ESB sinnum. ESB hótar Íslendingum.

Hroll hlýtur að setja að jafnvel hörðustu stuðöningsmönnum ESB aðildar við að heyra fréttir um hótanir ESB í garð okkar Íslendinga. Fram hefur komið að Maria Damanaki,sjávarútvegsstjóri ESB vill að innflutningsbann verði sett á íslenskar sjávarafurðir og að aðildaviðræður verði frystar. Þetta er gert vegna þess að Íslendingar eru að veiða makríl, se ekki er að skapi ESB. Boðskapur ESB er að við eigum að hlýða annars skulu við hafa verra af.

Merkilegt er miðað við þessar yfirlýsingar forystumanna ESB að hér á landi skuli Össur utanríkisráðherra halda því fram að við Íslendingar þurfum engar varanlegar undanþágur í sjávarútvegi í saningaviðræðum við ESB. halda menn virkilega miðað við frakommu ESB nú í okkar garð að einhver vilji sé til að  við höldum okkar réttindum í sjávarútvegi. Gefur þessi tónn ESB tilefni til einhverrar bjartsýni um hagstæða samninga í sjávarútvegi og veiðum okkar Íslendinga.

Áhugi ESB að fá okkur í ESB er vitanlega til þess að ná í okkar fiskimið og geta stjórnað hvernig veiðum þar er háttað.

Hótanir ESB núna hljóta að fá marga sem héldu að ESB væri framtíðarlausn fyrir okkur að hugsa svolítið. Hótanir ESB núna sýna það svart á hvítu að forysta ESB er ekki að hugsa um hagsmuni okkar Íslendinga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sigurður, en hvað eru Norðmenn að gera með að styðja ESB í þessu fyrirhugaða viðskiptabanni þegar þeir eru ekki einu sinni aðildarþjóð?

Ég get skilið skotana að þeim sárni þetta norðurflakk á makrílnum sem þeir telja sinn en norskir hafa einhverja allt aðra viðskiptahagsmuni í huga.

Kolbrún Hilmars, 28.7.2011 kl. 16:23

2 identicon

Ég held að það væri nær fyrir ESB að taka okkur inn með flýtimeðferð Össurar í stað þess að standa í vegi fyrir inngöngu okkar, því að þá gætu þeir skammtað sér kvóta á Makríl hér á Íslandsmiðum, og Össur gæti ekkert gert, ekki einu sinni sýnt þeim fingurinn. Ekkert vesen út af Hvalveiðum, því þær myndu stoppa sjálfkrafa.

Já Þeir eiga að taka össur á orðinu, að við þurfum ekki neina sérstakar undanþágur og hleypa okkur inn hið fyrsta.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 28.7.2011 kl. 17:11

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Rafn, annað hvort gerast íslendingar aðilar að ESB uppréttir og stoltir eða kæra sig yfirhöfuð alls ekki um aðild. Í hvorugu tilvikinu ætti að vera þörf á neinum fj... undanþágum.

Kolbrún Hilmars, 28.7.2011 kl. 18:18

4 Smámynd: Ómar Gíslason

Er nafnið á esb ekki rangt? Heitir það ekki í raun Hrollabandalagið (HBL)?

Ómar Gíslason, 28.7.2011 kl. 18:26

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Inn í sæluríkið skulum við með góðu eða illu. Kveðja Össur!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 28.7.2011 kl. 18:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 828349

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband