VILL SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN MINNKA MEIRA ?

Ég eins og margir aðrir Sjálfstæðismenn hafa áhyggjur á stöðu okkar flokks. Ég skil ekki vinnubrögð okkar ágætu manna í sumum málu. Síðasta skoðanakönnu hefði nú átt að vera ágætis viðvörun til þeirra. Samkvæmt þeirri könnun væri Sjálfstæðisflokkurinn vel innan við 30% flgi í kosningum.

Miðað við nýjastav útspil Árna fjármálaráðherra í deilunni við ljósmæður held ég að hann auki ekki fylgi flokksins. Hvernig er það eiginlega,tala ráðherrarnir ekkert saman í ríkisstjórninni? Ingibjörg Sólrún segir þetta útspil Árna ekki heppilegt.Hvernig dettur honum í hug að fara í dómsmál vegna uppsagna. Hvað vinnst eiginlega með því? Aukin harka í málin. Er það rétta leiðin til að ná lausn?

Ég tala örugglega fyrir munn margra Sjálstæðismanna þegar ég segi. Hættið þessari vitleysu.Þið eruð með stjórnarsáttmála sem segir að leiðrétta eigi kjör kvennastétta. Ég held nú að ljósmæður hljóti að vera dæmigerðasta kvennastétt landsins. Nú berast þær fréttir að konur sé enn að dragast aftur úr körlunum.

Maður skilur ekki þessa þvermóðsku í kjaradeilunni,þegar hægt er að vitna í stjórnarsáttmálann.

Ég mótmæli því harðlega sem Sjálfstæðismaður að það skuli vera keppikefli sumra forystumanna flokksins að gera allt sem í þeirra valdi til að flokkurinn minnki.

Það er ekki vilji okkar óbreyttu Sjálfstæðismanna.


mbl.is Gæti leitt til stigmögnunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Ótrúlega galinn gjörningur í viðkvæmri stöðu. Þið verðið að fara að taka í skottið á dýralækninum...hann er ekki að virka rétt.

Jón Ingi Cæsarsson, 12.9.2008 kl. 13:06

2 identicon

Ég hef alltaf kosið Sjálfstæðisflokkinn - ef þetta verður að veruleika hjá Árna þá mun ég ekki kjósa hann aftur.

Anna K (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 13:09

3 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

 Tek heilshugar undir þetta með pislahöfundi

Ég held nú að ljósmæður hljóti að vera dæmigerðasta kvennastétt landsins. Nú berast þær fréttir að konur sé enn að dragast aftur úr körlunum.

Maður skilur ekki þessa þvermóðsku í kjaradeilunni,þegar hægt er að vitna í stjórnarsáttmálann.

Ég mótmæli því harðlega sem Sjálfstæðismaður að það skuli vera keppikefli sumra forystumanna flokksins að gera allt sem í þeirra valdi til að flokkurinn minnki.

Það er ekki vilji okkar óbreyttu Sjálfstæðismanna.

gangi okkur vel

Jón Snæbjörnsson, 12.9.2008 kl. 13:14

4 identicon

Ég hef aldrei kosið Sjálfstæðisflokkinn, en nú er að verða fátt um fína drætti. Samfylking ekki kjósandi með Sollu við stjórnvölinn. Og umhverfisráðherrann, jeminn eini. Þá er það Framsókn og Guðni. Nei andskotinn.......... Eða Magnús Þór, sem er eins langt frá öllu frjálslyndi og komist verður og ekkert fæst þaðan nema útlendingahatur af verstu sort. Svei þeim öllum. Og svei Árna Matt líka, óalandi og óferjandi. Hvar næst í heilindi hjá þessum flokkum? Sorrý, hvergi. Þeir eru allir eins. Það er ekki einu sinni hægt að kjósa lengur. Allt er fánýti. Eftirsókn eftir vindi, eins og prédikarinn sagði.

sleggjudómarinn (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 13:42

5 identicon

Já og svo VG líka. Þeir eru mér svo fjarlægir að ég gleymdi hreinlega að nefna þá. Þeir eru ekki frekar kjósandi en hinir. Skattahækkanir, engar virkjanir, sem minnst af framkvæmdum, því að þær eyðileggja náttúruna... bla, bla, bla... Úlfur í sauðargæru, rauður undir grænfána. Nei takk.

sleggjudómarinn (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 13:49

6 identicon

Árni vandi mig af Sjálfstæðisflokknum, var bundinn en er nú laus.  Ef einhver þar á bæ togar ekki í fallhlífina bráðum þá enda þeir fyrir neðan Framsókn.

Björn Jónasson (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 14:15

7 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Mikið skil ég áhyggjur þínar vel.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 12.9.2008 kl. 17:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 828298

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband