HEFND DAVÍÐS. TRÚIR FÓLK VIRKILEGA ÞESSU BULLI.

Eins og við var að búast eru viðbrögð sumra forystumanna Glitnis eins og Jóhannesar í Bónus og Jóns Ásgeirs að halda því fram að yfirtaka bankans séu hefndaraðgerðir Davíðs Oddssonar,Seðlabankastjóra. Blaðið DV slær þessu upp í stríðs fyrirsögn á forsíðu í dag.Hefnd Davíðs. Þessi áróðursherferð Baugsmanna og fleiri er fáránlega ófyrirleitin. Hvað í óskupunum ætti Davíð Oddsson að hafa útúr því að nota gjaldeyrisvarasjóð Seðlabankans til að yfirtaka Glitni. Hvað í óskupunum ætti Davíð Oddsson að hafa útúr því að láta fleiri þúsund manns tapa fjármunum vegna eignar sinnar í Glitni. Þetta er svo fáránlegur óhróður hjá Baugsmönnum og fleirum að ekki nær nokkurri átt.

Nú koma sumir forystumenn Glitnis og segja. Við hefðum getað leyst málin á annan hátt. Hvers vegna í óskupunum gerðu þeir það ekki. Voru það ekki Glitnismenn sem komu á hnjánum til Seðlabankans?

það er ekkert grín fyrir ríkið að þurfa að yfirtaka Glitni. Það kostar hvern Íslending 268 þús.kr.

Ekki er það Davíð Oddsson sem er að setja Stoðir á hausinn. Hvernig væri fyrir fjármálamennina að líta aðeins í eigin barm og skoða "afrekaskrána" sína síðustu misserin.Varla hafa þeir haft Davíð með í ráðum í öllum fjárfestingunum.

þeir geta talað digurbarkalega fjáramálagæarnir,en það er almenningur sem borgar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Jónsson

Átti virkilega að  lána Glitni 86 milljarða af almannafé og eiga á hættu að tapa öllum peningunum.Hvað hefði þá verið sagt?

Ekki er Davíð að stjórna í útlandinu,þar sem er verið að þjóðnýta banka.

Sigurður Jónsson, 30.9.2008 kl. 21:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 828279

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband