Er þetta rétti tíminn?

Eflaust má ýmislegt betur fara í heilbrigðiskerfinu eins og víðar. Eflaust er hægt að spara,en það er þá spurning hvort það bitnar á þjónustunni. Auðvitað er hægt að hækka þjónustugjöldin og ná þannig inn meiri tekjum.Það hlýtur samt að vera stór spurning hvort rétt sé að stíga stór skref í æþessum efnum núna. Heilbrigðisráðherra boðar nú biltingakenndar tillögur í heilbrigðismálum. Mér finnst hann þurfa að sýna þjóðinni framá að með þessum aðgerðum verði ekki dregið úr þjónustu. Ég er alls ekki sannfærður um að það sé alltaf leiðin til að ná fram sparnaði að sameina allt í stórar einingar. Reynslan hefur sýnt að svo er ekki. Ég tek undir með sóknarprestinum í Eyjum,hvaða vit er í því að færa sjúkrastofnun í Eyjum undir Heilbrigðisstofnunina á Selfossi. Það er mikið atriði fyrir Eyjamenn að hafa sem öflugasta sjúkrastofnun,sem heimamenn ráði sjálfir yfir. Sérstaða Eyjamanna er mikil í þessum efnum eins og öðrum.

Það kemur mér  á óvart að svo virðist sem tillögur heilbrigðisráðherra séu unnar án samráðs við starfsfólk og fagstéttir á viðkomandi stöðum.

Ráðherra þarf að rökstyðja mun betur  hvers vegna er verið að leggja niður sjúkrastofnun í Hafnarfirði,sem almemnnt er álitin hafa staðið sig mjög vel.

Ég er ekki sannfærður um að ráðherra sé að gera rétt í þessum málum.


mbl.is Vinnubrögðin nísta inn að hjarta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 828342

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband