15.3.2009 | 20:05
Sigurstranglegur framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
Ágætis þátttaka var í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Ég er nokkuð ánægður með hve vel spá mín rættist,sem ég setti fram í byrjun vikunnar.Nöfn sjö efstu voru rétt hjá mér,þótt röð manna hafi ekki verið nákvæmlega eins og ég spáði.
Ragnheiður Elín vann sannfærandi sigur í fyrsta sætið og verður pottþétt góður leiðtogi listans og á alla möguleika á því að verða ráðherra komist Sjálfstæðisflokkurinn í ríkistjórn. Ég botna ekkert í Árna Johnsen að vera að gagnrýna það að ákveðnir forystumenn í kjördæminu hafi lýst yfir stuðningi við Ragnheiði Elínu í forystusætið. Mér finnst Árni Johnsen geta mjög vel unað við það að hafna í öðru sæti. það hefði verið mun vænlegra fyrir hann að segja að hann styddi Ragnheið Elínu sem leiðtoga Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Kjósendur völdu hana og það er niðurstaða sem ber að virða.
Unnur Brá kemur sterk út,sem þriðja á lisitanum. Hún nýtur trausts og verður örugglega sterkir þingmaður.
Sigurvegari prófkjörsins er Íris Róbertsdóttir. Það er frábært að koma inn í prófkjörið sem óþekkt stærð og ná 4.sætinu.Íris kemur mjög vel fyrir og á eftir að standa sig vel í baráttunni.Ég er alveg sannfærður um að kjósendur í Suðurkjördæmi muni tryggja Írisi öruggt þingsæti.Ég fagna virkilega þessum árangri Írisar.
Auðvitað er það áfall fyrir Kjartan og Björk að ná ekki betri árangri. Það lá í loftinu að fólk vill sjá ákveðnar breytingar. Hvorki Björk eða KJartan hafa náð að láta að sér kveða á Alþingi á þann hátt að eftir væri tekið.Spurning hvað þau gera í að taka þessi sæti.
Ég hélt að Grímur Gíslason myndi ná betri árangri,en hann hafnaði í 7.sæti. Spurning hvað gerist ef Björk og Kjartan taka ekki sæti. Verður Grímur þá færður upp?
Sigur kvenna er glæsilegur í þessu kjördæmi. Verulega góðar líkur eru á því að þessi forysta Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi eigi eftir að ná verulega góðum árangri í kosningunum 25.apríl n.k.
![]() |
Ragnheiður Elín efst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Sigurður Jónsson
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Eyjafréttir
- Eyjan
- Sjálfstæðisflokkurinn
- Víkurfréttir
- Barnabörnin
- Sveitarfélagið Garður
- Reykjanesblaðið Kemur út hálfsmánaðarlega.
Bloggvinir
-
gumson
-
nkosi
-
addi50
-
baldher
-
kaffi
-
birgitta
-
bjarnihardar
-
artboy
-
gattin
-
carlgranz
-
diesel
-
gagnrynandi
-
einarbb
-
ellidiv
-
eyglohardar
-
ea
-
fhg
-
gesturgudjonsson
-
gretarmar
-
gudbjorng
-
lucas
-
dramb
-
gylfig
-
fosterinn
-
smali
-
helgi-sigmunds
-
helgimar
-
helgigunnars
-
himmalingur
-
hjorturgud
-
ibvfan
-
jakobk
-
johannp
-
jonmagnusson
-
jonsnae
-
kolbrunerin
-
ladyelin
-
lotta
-
liljabolla
-
altice
-
ludvikludviksson
-
maggij
-
iceland
-
redlion
-
rynir
-
heidarbaer
-
sigurjon
-
sv11
-
sigurdurkari
-
siggith
-
steffy
-
stebbifr
-
eyverjar
-
svanurg
-
tibsen
-
vefritid
-
nytthugarfar
-
nautabaninn
-
hector
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
iceberg
-
tbs
-
doddidoddi
-
valdivest
-
malacai
-
annabjorghjartardottir
-
launafolk
-
bjarnimax
-
bookiceland
-
eeelle
-
gauisig
-
elnino
-
zumann
-
gp
-
morgunblogg
-
minos
-
daliaa
-
johannesthor
-
stjornun
-
jonlindal
-
bassinn
-
kuldaboli
-
kristjan9
-
maggiraggi
-
odinnth
-
omarbjarki
-
oskareliasoskarsson
-
skari
-
siggus10
-
siggisig
-
steinn33
-
valdimarjohannesson
-
thjodarheidur
-
valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.