Ekki frétt að Ólafur Ragnar sé í viðtali. Það væri frétt ef þetta hefði verið Jóhanna.

Stundum er fréttamatið skrítið hjá fjölmiðlum. Það er ekki nein frétt að Ólafur Ragnar hafi verið í viðtali við erlendan fjölmiðil. Sérstaklega hafi hann ekki gefið út neinar yfirlýsingar,sem næstu daga þarf að leiðrétta.

Það hefði aftur á móti verið risafrétt ef Jóhanna forsætisráðherra hefði átt viðtla við erlenda fjölmiðla.

En svona í alvörunni er það auðvitað gott að vekja athygli á okkar miklu orku og þeim möguleikum sem við eigum í að rafvæða bílaflota okkar á næstu árum. Auðvitað hlýtur það að vera mjög skynsamlegt að maður tali nú ekki um möguleikann á að við getum sett saman slíka bíla og hafið útflutning.

Vonandi verða rafbílar framtíðin hér á landi. Maður vildi allavgea óska þess að vera á einum slíkum í hvert skipti sem maður tekur bensín á bílinn.


mbl.is Ólafur Ragnar í viðtali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Viðtalið við Ólaf Ragnar er góð frétt og hefur væntanlega góð áhrif fyrir Íslands hönd á erlendri grundu. Þeir í útlöndum er ekki að velta sér álitum einhverra íhaldsgaura á forsetanum heldur þeim áhuga sem hann hefur á umhverfismálum. Sem betur fer er Davíð Oddsson ekki mikið í viðtölum, hvorki innan lands eða utan, því þar hafa stóru skandalarnir verið eftir það sem hann hefur fullyrt fyrir hönd þjóðarinnar. ICESAVE málið og meðhöndlun Breta og Hollendinga á okkur í kjölfar stóryrða Davíðs er stóri skandallinn og verður vonandi ekki toppaður í bráð.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 19.9.2009 kl. 17:44

2 identicon

Já, ég segi nú bara að ekki sé of langt þangað til! Ekki v eitir af að spara gjaldeyrinn, en innflutningur orkugjafanna er að sjálfsögðu afar kostnaðarsamur; geri þó ráð fyrir að þróunin taki all langan tíma, svo sem við má búast; en íslendingar eru nú einu sinni framtakssamt fólk.

Smyrill (IP-tala skráð) 19.9.2009 kl. 18:32

3 identicon

Sammála þér Sigurður!

Algjört undur líka að hann hafi ekki þurft að leiðrétta neitt úr þessu viðtali ennþá - eins og raunin hefur verið undanfarin misseri.

Spurning líka hvort einhver viðtöl eru betri en engin - eins og frú Hólmfríður vill meina.  Sumir eru með stærri snúð fastan á sér en aðrir...

Sigrún Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 19.9.2009 kl. 21:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 828258

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband