Bankastjóri Englandsbanka sagði að Icesave-krafan yrði afskrifuð.

Alltaf er eitthvað nýtt og athyglisvert að koma upp á yfirborðið varðandi Icesave. Alltaf eru að koma upplýsingar sem sannfæra öruggega fleiri og fleiri um það að almenningur á Íslandi á ekki að borga skuld sem einkabanki stofnaði til.

Það er athyglisvert sem kemur fram í viðtali við Davíð Oddsson,þar sem hann segir frá yfirlýsingu bankastjóra Englandsbanka um að Icesave-krafan verðoi afskrifuð, Davíð segir að þessi yfirlýsing sé til.

Eftir svona upplýsingar hljóta margir að velta fyrir sér hvers vegna í óskupunum Jóhanna og Steingrímur J. leggja svona gífurlega mikla áherslu á að almenninur á Íslandi greiði Bretum og Hpllendingum Icesave skuld gamla Landsbankans.


mbl.is Davíð: Ekki starfhæf ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvar er hægt að nálgast þessa yfirlýsingu? Má treysta orðum Davíðs um þetta, frekar en orðum hans um stóra rússneska lánið?

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 30.12.2010 kl. 22:36

2 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Þetta verður að koma fram fyrir alþjóð! Og mun gera það ef þetta er rétt.

Eyjólfur G Svavarsson, 31.12.2010 kl. 01:05

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Ástæða þess að Steingrímur og Jóhanna leggja slíka ofuráherslu á að við borgum icesave er einungis til að liðka fyrir ESB skelfingunni!!

Gunnar Heiðarsson, 31.12.2010 kl. 06:27

4 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Sigurður, þú verður að hlutast til um að þessi yfirlýsing verði birt. Annað hvort sem undirritað skjal eða myndband.

Annað er ekki í boði í stöðunni. Annars verður þetta mál haft í flimtingum á næsta ári sem algert flím.

Hér duga ekki munnmælasögur að fornum hætti.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 31.12.2010 kl. 09:47

5 Smámynd: Villi Asgeirsson

Segi eins og aðrir að ofan. Ef þetta plagg er til, verður að birta það strax. Ef ekki, trúi því jafn tæplega og öðrum smásögum úr penna Davíðs.

Villi Asgeirsson, 31.12.2010 kl. 10:48

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Merkileg frétt.

Bið um leyfi þitt, Sigurður, til að vitna til þinna orða hér á vefsíðu Þjóðarheiðurs – samtaka gegn Icesave.

Jón Valur Jensson, 31.12.2010 kl. 13:41

7 identicon

Jóhanna er ekki leiðtogi frá náttúrunnar hendi og hefur hætt sér inn á svæði sem hún á ekki heima á. Hún er of leiðitöm, og áhrifagjörn og of hégómleg (hún roðnar þegar sumar fréttakonur skjalla hana!) til að geta hagað sér eins og leiðtogi. Leiðtogi er klettur sem stendur óhaggaður af lasti, en sérstaklega af lofi, óvinum, en sérstaklega vinum. Jóhanna hefur ekki þennan innri styrk og þennan innri frið sem einkennir sannan leiðtoga, heldur er hún sem rekald er hrekst í vindi. Það versta af öllu er að Jóhanna stjórnast af ótta, en það á hún sameiginlegt með Steingrími og fleirum. Þess konar fólki lýsir einn af stofnfeðrum Bandaríkjanna, upplýstur maður, með orðunum "Those who are willing to give up essential liberty, to find a bit of temporary safety, deserve neither and will lose both." Og ef aðeins þjóðin hefði treyst þessu fólki meir, tekið þau trúanlegar, gefið þeim meira "tækifæri" og sýnt minni mótstöðu, þá hefðum við verið óverðug að sjálfstæði okkar og frelsi og hefðum þegar glatað báðu, því ótti sem kallar á smá öryggi sama hvað stírir Jóhönnu og Steingrími og það var óttinn sem hrakti þau til að vera með endalausan áróður fyrir Icesave I, neita að skoða aðra möguleika, reyna að telja þjóðinni hughvarf að mæta á kjörstað og spá dómsdegi, eldi og brennisteini ef við beygðum okkur ekki strax undir svipu gömlu heimsveldanna sem nú herja á okkur, og hafa þegar knésett hálfa Afríku í eilíft skuldafangelsi og hindra með því alla uppbyggingu (Átak Bono og fleiri MAKE POVERTY HISTORY er enn í gangi, kynnið ykkur það! Að samþykkkja EKKI Icesave er innlegg í þá baráttu, því það hjálpar hrjáðustu þjóðum heims með að setja nýtt fordæmi um lausn úr skuldavanda og mun hafa afdrifarík áhrif á alþjóðalöggjöf.......horfið fram í tíman! Þá mun allur heimurinn elska Ísland fyrir staðfestu sína!)

Helsta einkenni alvöru leiðtoga er ÓTTALEYSI. Hann lætur ekki hræða sig til að taka ákvarðanir byggðar á stund og stað og hvað þá grýlum og blekkingum og blindþokum og ryki sem aðrir þyrla upp og slá í augu hans, eins og er raunin með Jóhönnu og AGS, ESB etc hvers hvert einasta orð hún tekur jafn trúanlega og leiguliðinn í gamla daga, hræddur um að vera annars brenndur á báli, orð biskups og kóngs, því hún er að eðlisfari þræll, og Steingrímur líka, og því vanvirða þau frelsi annars fólk og traðka í svaðið, þó réttur hvers manns, meðfæddur sé frelsið.

Það er HÆTTULEGT að hafa "leiðtoga" sem ekki búa yfir réttum eiginleikum.

Ef við losnum okkur ekki mjög fljótt við þetta fólk, þá fara þau að verða agressívari heltekin af ótta sem þau eru, og munu hoppa á fyrsta tilboð um að selja íslensku þjóðina. Þetta er bara þeirra eðli, þau eru ekki merkilegri eða betri manneskjur en það, þau eru í ánauð og fjötrum blekkinga og sjúklegrar hræðslu sem lætur þau taka rangar ákvarðanir og fékk þau nánast til að tortýma þjóðinni.

Ísland er kúgað af gömlu heimsveldunum og þarf nýja leiðtoga fyrir nýja tíma. Leiðtoga sem eru óttalausir að standa uppi í hárinu á þeim sem fara með völd í heiminum og breyta þannig gangi sögunnar. Ísland sem hefur verið hlunnfarið af sömu öflum og Indland, verðandi miðstöð heimsins, þarf mann sem er alvöru leiðtogi, hugrakkur, samkvæmur sjálfum sér og haggast ekki frekar en klettur hvað sem líður hótunum og hræðsluáróðri, mann eins og Ghandi.

Jóhanna og Steingrímur eru eins fjarri Ghandi og komist verður. Þau minna frekar á gyðingana í útrýmingarbúðunum sem fengu örlítið betri meðferð (hærra kaup etc) í skiptum fyrir að fara illa með sína eigin samlanda og urða lík þeirra. Mér þykir það leitt en svona fólk er ekki hægt að bera saman við neitt annað. Þau eru heiglar og svikarar. Fyrirgefum þeim, eyðum ekki orku í að hata þau, en finnum þessu sálsjúka og fárveika fólki með sinn sjúklega Stockholms syndrome, sem laug því hér Íslandi bæri "siðferðileg skylda"  til að borga Icesave I (og Afríkönunum þá til að svelta undan skuldafangelsi gömlu nýlenduherranna samkvæmt sömu rökum og sömu lífssýn!), á að finna störf við hæfi, þar sem þeirra góðu eiginleikar, sem vonandi eru einhverjir nýtast, án þess þau geti skaðað aðra með valdi, því vald eiga áhrifagjarnir heiglar aldrei að fá í hendur. 

XXX (IP-tala skráð) 31.12.2010 kl. 14:47

8 Smámynd: Óskar Þorkelsson

merkilegt að JVJ þar ekki að leyta sannana fyrir þessu bulli í Dabba

Óskar Þorkelsson, 31.12.2010 kl. 15:45

9 Smámynd: Jón Valur Jensson

Telurðu líklegt, Óskar, að Davíð ljúgi upp á bankastjóra Englandsbanka?

Hvernig ætti Davíð að geta haft hag af því?

Jón Valur Jensson, 31.12.2010 kl. 21:25

10 Smámynd: Óskar Þorkelsson

td það að fólk eins og þú JVJ trúir þessum bjálfa.. fáið þetta staðfest og málið er dautt.. annars er Dabbi bara að ljúga ENN EINU SINNI

Óskar Þorkelsson, 31.12.2010 kl. 22:22

11 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Athyglisvert! En er þetta marklaust hjal? Er mark á þessum málssvara Englandsbanka?

Mér skilst að allar innborganir vegna útistandandi krafna Landsbankans sé beint inn á vaxtalausan reikning Englandsbanka til tryggingar þessum kröfum tengdum icesave. Og ekki nóg með það: þessar innistæður séu sífellt hækkandi og nálgist brátt það sem kröfunni nemur!

Er ekki það sem málið snýst um?

Kannski við séum laus fyrr úr snörunni en margir telja!

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 1.1.2011 kl. 03:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 828273

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband