Stjórnmálafræðingur vill hunsa Hæstaréttardóm.

Hneyksli og aftur hneyksli. Stjórnmálafræðingurinn Gunnar Helgi leggur til að dómur Hæstaréttar um ógildingu Stjórnlagakosningarinnar verði hunsaður og Alþingi setji lög þar sem 25 menningarnir verði bara skipaðir.

Alveg væri það eftir Vinstri stjórninni að fara þessa leið. Hæstiréttur dæmdi kosninguna í heild sinni ógilda. Það eru því aðeins tveir möguleikar í stöðunni þ.e. að hætta við stjórnlagaþingið eða boða til nýrra kosninga.

Miðað við Yfirlýsingu Gunnars Helga held ég að við höfum lítið við það að gera að maður með þennan hugsunargang eigi að taka þátt í að semja nýja stjórnarskrá.

Verði niðurstaðan að boða til nýrra kosninga er mjög líklegt að aðrir hafi áhuga á framboði. Ég er t.d. viss um að landsbyggðarfólk hefði áhuga á að rétta sinn hlut.

Það er alveg hreint ótrúlegt að stjórnmálafræðingur skuli leggja til að Alþingi eigi að hunsa dóm Hæstaréttar.

 


mbl.is Verði skipaðir í stjórnarskrárnefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég var að spá að gefa kost á mér til stjórnlagaþings en hætti við þar sem ég mér fannst allt í kringum þessar kosningar til stjórnlagaþings vera gegn lögunum um kosningar til þings og sveitastjórna á Íslandi. Ég geng út frá því að þessu verður komið í lag og ef svo verður ætla ég að gefa kost á mér til stjórnlagaþings þegar kosið verður aftur.

Baldvin Nielsen Reykjanesbæ fyrrverandi frambjóðandi til alþingsins og bæjarstjórnar

B.N (IP-tala skráð) 26.1.2011 kl. 22:24

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Algjörlega sammála þér Sigurður, hneyksli er akkúrat orðið og að halda að það sé hægt að hunsa svona Hæstarétt er með ólíkindum...

Þessi Ríkisstjórn er að ganga þannig frá hlutunum finnst manni að það er spurning hvort Ríkisstjórnin sé ekki búin að brjóta það mikið á rétti okkar almennings að beinnt í lögreglu-gæsluvarðhald þarf hún að fara á meðan það verður skoðað og kannað fyrir hverja hún er að vinna...

Það var sett alvaralega út á formið, svo alvaralega að kosningin var dæmd af.

Þessi Ríkisstjórn verður að axla sjálf ábyrgð á þessu mikla klúðri og víkja tafarlaust, ekki að kenna öllum öðrum um. Þetta er Ríkisstjórn Íslands og svona á ekki að gerast ef að vinna og verklag vinnur saman.... Það er Ríkisstjórnin sem er ábyrg...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 26.1.2011 kl. 22:59

3 identicon

Algjörlega sammála þer Ingibjörg og Sigurður .En það mun nú mikið þurfa að ganga á að rikisstjórnin  viki sjálfviljug ! ..en við  ættum nu kanski að fara skerpa okkar áherslur með að láta heyra meira i okkur ..svona almenningur sem ennþá er á landinu  !!.   þvi það er verið að þverbrjóta öll lög og rett  trekk i tekk  og öllum sagt að eta bara það sem úti frýs , nú siðast Hæðstaretti !!!!!!!!!! þvilik veruleikafirring !!      

ransý (IP-tala skráð) 26.1.2011 kl. 23:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 828276

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband