Þrátt fyrir betri samning á þjóðin að samþykkja eða synja samningnum.

Flestir eru sammála að nú liggi fyrir hagstæðari Icesave samningur en áður. Þjóðin kom í veg fyrir að Steingrímur J. og Jóhanna myndu að óþörfu skuldbinda þjóðina til að greiða hundruði fleiri milljarða.

Þjóðin felldi síðasta samning með afgerandi hætti. Það liggur alveg ljóst fyrir að þjóðin verður að afgreiða fyrirliggjandi samning. Þjóðin er fullfær um að taka ákvörðun um það hvort hún samþykkir eða synjar samningnum.

Það á ekki einu sinni að þurfa að koma til kasta forsetans. Alþingi sjálft á að taka þá ákvörðun að vísa samningsdrögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Nú reynir á þingmenn a'ð þeir meini virkilega að almenningur eigi að fá aukin völd. Á góðum stundum er það sagt að ný stjórnarskrá eigi einmitt að negla það. En Alþingi getur samkvæmt öllum lögum og reglum sem nú eru í gildi vísað samningnum í þjóðaratkvæði.

Það hlýtur að verða gert.


mbl.is Mun betri Icesave-samningur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Er það, Sigurður, eru komin lög um þjóðaratkvæðagreiðslur? Éh held ekki.

Forsetinn á að hafna þessum ólögvarða NN-milljarðatuga eða milljarðahundraða-samningi vanhæfrar Icesave-stjórnar og yfirgangssamra, sýndarmennskulegra ráðamanna fyrrverandi nýlenduvelda, hann á að skjóta málinu undir dóm þjóðarinnar, til ÞESS hefur hann vald skv. 26. gr. stjórnarskrárinnar, og það vald er sett fyrir okkur.

Allt um þetta mál á vefsíðunni thjodarheidur.is

Og hér er sú nýlega YFIRLÝSING Þjóðarheiðurs, sem fjölmiðlar hafa lagt kapp á að steinhalda kjafti um, þó að Þjóðarheiður sé 80 manna samtök sem hafa unnið einarðlega að þessu máli síðustu 11 mánuðina:

"YFIRLÝSING: Þjóðarheiður – samtök gegn Icesave

hvetur til samstöðu Íslendinga gegn Icesave-kröfunum.

Fulltrúar erlends valds og framandi hugmyndafræði hafa hreiðrað um sig í óðali Jóns Sigurðssonar. Þrátt fyrir að Íslendingar hafi með eftirminnilegum hætti hafnað forsendulausum kröfum hinna gamalgrónu nýlenduvelda Bretlands og Hollands, er ríkisstjórn landsins ennþá að störfum fyrir hið erlenda vald. Velferðarstjórnin er enn á ný búin að gera samning um Icesave-kröfurnar, sem almenningur hafnaði í þjóðaratkvæðinu 6. marz 2010. Velferðarstjórnin, sem við ófá tækifæri hyllir framandi hugmyndafræði, hefur í þriðja skipti á sex mánuðum gert samning um að almenningur á Íslandi taki á sig forsendulausar drápsklyfjar.

Atlaga ríkisstjórnarinnar að hagsmunum Íslendinga er svo umfangsmikil og harkaleg að lengi mun höfð í minnum. Þjóðarheiður krefst þess að framganga núverandi ríkisstjórnar í Icesave-málinu sæti opinberri rannsókn og ráðherrarnir hljóti dóma fyrir Landsdómi eða almennum dómstólum. Fyrir alla framtíð verður að hindra að valdstjórnin láti sér detta í hug að ganga erinda erlendra hagsmunaaðila. Ströngustu refsingar að lögum verður að krefjast yfir þeim mönnum sem haft hafa forgöngu um Icesave-kúgunina.

Þjóðarheiður – samtök gegn Icesave hefur frá upphafi Icesave-deilunnar barist gegn tilraunum valdstjórnarinnar að koma ólöglegum skuldahlekkjum á almenning í þessu landi. Allir réttsýnir menn skilja að Icesave-kröfurnar eru án lagalegra forsendna. Icesave-kröfurnar eru efnahagslegur hernaður af verstu tegund. Hin gamalgrónu nýlenduveldi eru að sýna smáþjóð mátt sinn. Þjóðarheiður – samtök gegn Icesave skorar á alla Íslendinga að samfylkja liði gegn nýlenduveldunum gömlu og innlendum þjónum þeirra.

Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, hefur sannað að fullveldi þjóðarinnar er í höndum hennar sjálfrar og hann kom í veg fyrir að Ísland yrði gert að skattlandi tveggja gamalgróinna nýlenduvelda. Með þjóðaratkvæðinu 6. marz 2010 var stjórnarskrá lýðveldisins heiðruð. Staðfest hefur verið að stjórnarfar á Íslandi er lýðveldi og ólýðræðislegu þingræði hefur endanlega verið hafnað. Lýðræði byggir á þeirri forsendu að ótakmarkað og endanlegt vald í samfélaginu er í höndum lýðsins – alþýðunnar í landinu. Lýðræðið mun ekki verða látið af hendi.

Þjóðarheiður – samtök gegn Icesave."

Jón Valur Jensson, 28.1.2011 kl. 15:55

2 Smámynd: Guðmundur Kristinn Þórðarson

Þessu Icesave máli var vísað til þjóðarinnar, og á þjóðin að hafa síðasta orðið úr því sem komið er

Guðmundur Kristinn Þórðarson, 28.1.2011 kl. 16:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 828286

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband