Útgerðin fái reikninginn ekki skattgreiðendur

Krafa stóru útgerðarfélaganna á hendur ríkinu um bætur vegna úthlutunar makrílkvóta á sínum er ekki gott innlegg í þá sam,stöðu sem nú ríkir í baráttunni við kórónuveiruna.

Það eru margar stéttir sem munu fara mjög illa fjárhagslega vegna þessa alheimsfaraldurs.Ekki er líklegt að stórútgerðir séu í þeim hópi sem fer verst fjárhagslega í þessum aðstæðum. Það eru allt aðrir hópar samfélagsins sem þurfa á aðstoð frá ríkinu að halda til að geta lifað eðlilegu áfram. Það verður einnig mjög erfitt hjá mörgum einstaklingum,sem þurfa hjálparhönd frá ríki og sveitarfélögum til að geta framfleytt sér og sínum næstu mánuðina.

Það er því algjörlega úr öllum takti að stórúgerðir krefjist nú 10 til 15 milljarða bóta frá almennum skattgreiðendum í landinu.

Það ber að fagna yfirlýsingu Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra í málinu. Hann segist hafa góðar vonar að ríkið vinni málið,en fari svo að ríkið tapi komi ekki til greina að skattgreiðsndur greiði heldur verði útgerðinn sjálf að greiða reikninginn.

Katrín Jakkobsdóttir,forsætisráðherra,tekur í sama streng og segir að útgerðin ætti að íhuga að draga málið til baka.

Allur almenningur sem nú stendur sameinaður í baráttunni gegn kórónuveirunni bæði heilsufarslega og efnahagslega hlýtur að gera þá samfélagslegu kröfu til stórútgerðarinnar að hún dragi til baka kröfu sína um 10 til 15 milljarða greiðslu úr ríkissjóði.


mbl.is Krefja ríkið um rúmlega 10 milljarða króna í bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bjarni talar digurbarkalega eftir launahækkunina eins og hann sé alráður og þurfi ekki að fara eftir lögum. En það var einmitt ráðherra sem taldi sig ekki þurfa að fara að lögum sem skapaði þessa skaðabótaskyldu. Ætlar Bjarni að skapa grundvöll fyrir enn stærra skaðabótamáli? Og varla verða útgerðir í rausnarlegu skapi sátta og samlyndis eftir formælingar og hótanir æðstu ráðamanna.

Ráðherrar undanfarinna ára hafa verið einstaklega óheppnir að tapa fjölda bótamála þar sem þeir hafa hundsað lög og reglur og brotið á þegnunum. Það mætti halda að lotning og húsbóndahollusta dómstóla væri lítil að þeir bæru enga virðingu fyrir valdi þeirra og mikilfengleik.

Vagn (IP-tala skráð) 14.4.2020 kl. 22:06

2 identicon

Þetta er mjög alvarlegt hjá Kötu og Bjarna að tala svona. Þau hafa ekki dómsvaldið. Ef að það verður venja að þegar ríkið tapar máli þá sé leitað til ráðherra um umsögn sem eigi að gilda ef ríkið tapar. Það sjá allir þvílík rangindi eru þarna á ferð. Að blanda því saman hver það er sem tapar málinu lýsir populisma og ég satt að segja trúði þessu varla upp á Bjarna. 

Örn Johnson (IP-tala skráð) 15.4.2020 kl. 15:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband