" KÓFDRUKKNAR KERLINGAR "

Baggalútur hefur mér þótt flytja skemmtileg lög og fína texta,en textin við lagið Þjóðhátíð93 er niðurlægjandi fyrir konur. Að tala um að strákar eigi að nýta sér kófdrukknar kerlingar,þaðsé nú auðvelt,þar sem þær komist ekki í burtu. Ekki hef ég trú á því að höfundur textans sé vísvitandi að hvetja til nauðgunar,en textinn er þannig að hann er niðurlægjandi fyrir konur. Sumir segja að aðeins sé verið að lýsa ástandinu. sem betur fer held ég að það sé ekki almennt að konur séu kódrukknar. Það á ekki aqð tala þannig að menn eigi að nýta sér ástand kvenna sem eru ofurölvi.Það er ekkert athugavert við það að strákar reyni að ná í stelpu en það á að vera á jafnréttisgrundvelli.Ég get ekki séð húmorinn í textanum. Það hlýtur að hafa verið hægt að setja saman skemmtilegan texta um þjóðhátíðina án þess að nota svona orð sem gert er.

Í gegnum tíðina hafa verið samdir margir textar um þjóðhátíðina í Vestmannaeyjum. Ekki einn einasti texti hefur verið með eins niðrandi texta og Baggalútur er að flytja um þessar mundir.Það er ekki til góðs fyrir Eyjamenn að svona mynd sé dregin upp af hinni árlegu þjóðhátíð,sem Vestmanneyingar leggja mikið uppúr að vel takist.

Baggalútsmenn ættu að sjá sóma sinn í að breyta textanum og sína konum meiri virðingu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 828283

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband