ÓTRÚLEGT HVERNIG FARIÐ VAR MEÐ FÓLK.

Það hefur verið greint frá því hvernig farið var með Eggert Haukdal fyrrverandi alþingismenn og oddvita.Hann þurfti að þrauka í 8 ár til að ná fram dómi Hæstaréttar um saleysi sitt.

Annað gamalt mál er nú aftur að koma fram í dagsljósið með tilkomu bókarinnar um Hafskipsmálið. Þetta var ótrúlegt má fyrir rúmum 20 árum. Það var með ólíkindum umræðum á sínum tíma og hvernig félagið var sett á hausinn. Það var ótrúlegt hvernig gengið var fram í að hneppa forustumenn félagsins og láta þá sitja þar í einangrun í mánuð.

Framkoma sumra þingmanna var með ólíkindum á þessu tíma. Má þar einkum nefna Ólaf Ragnar Grímsson,núverandi forseta Íslands. Það er hreint ótrúlegt að Ólafur skyldi ná því að verða forseti landsins eftir framgönguna í Hafsskipsmálinu.

Það verða örugglega margir sem koma til með að kaupa bókina um Hafskipsmálið. Það er fróðlegt fyrir unga fólkið að sjá hvernig umræðan var og hvernig orð menn viðhöfðu og að sumir þeirra sem ljótust orðin skulu síðar hafa orðið topp framámenn í íslensku þjóðfélagi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Fraamganga Ólafs Ra. Grímssonar verður lengi í minnum höfð og er varðveitt á spjöldum sögunnar.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 21.9.2008 kl. 14:35

2 Smámynd: Mál 214

***

Til hamingju Haukdal !

Til hamingju Hæstiréttur !

Til hamingju Ísland !

Endurupptaka, sýkna eftir langa baráttu . . .

Stefið er kunnuglegt enda hafa margir raulað það

eins og sjá má hér.

Mál 214, 21.9.2008 kl. 14:51

3 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Sigurður minn góður.  Hvernig í ósköpunum á útkoma bókar þar sem "blórabögglar" Hafskipsmálsins eru aðalritstjórar, að verða öðruvísi en jákvæð fyrir þá? Tek undir það, að engum á að leyfast slæm framkoma gagnvart einum eða neinum.  Það er með ólíkindum hvað þið Sjallar hafið verið og eruð pirraðir yfir því,  að Ólafur Ragnar Grímsson skuli vera forseti Íslands.

Þorkell Sigurjónsson, 21.9.2008 kl. 20:36

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ólafur Ra getur verið þinn forseti fyrir mér en hann er ekki og verður aldrei minn forseti Þorkell ;)

Heimir Lárusson Fjeldsted, 21.9.2008 kl. 20:57

5 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir þessa færslu Sigurður. Ég er sammála þér. Það er með ólíkindum hvernig farið hefur verið með Eggert Haukdal. Hann hefur virkilega mátt gjalda rangrar ákæru og ásakana. Hann hefur þurft að taka út sína refsingu heldur betur. En hvaða refsingu fá þeir sem gerðu mistökin sem leiddu til þessara nornaveiða. Enga sannaðu til.

Varðandi Hafskipsmálið þá var ég verjandi Ragnars Kjartanssona heitins stjórnarformanns Hafskips í málaferlunum og tek undir með þér að það er mikilvægt að rifja upp þær nornaveiðar sem voru í gangi og hvernig sumir stjórnmálamenn fóru fram og ættu að sjá sóma sinn í að biðjast afsökunar á framferði sínu. En sumir kunna ekki að skammast sín.

Jón Magnússon, 21.9.2008 kl. 21:47

6 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Já satt segir þú Jón minn Magnússon, ekki kunna allir að skammast sín.
Heimir minn ég er alveg viss um það, að hann Ólafur Ragnar Grímsson forseti vor mun fyrirgefa þér.

Þorkell Sigurjónsson, 21.9.2008 kl. 22:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband