BREYTTIR TÍMAR. NÝJAR KOSNINGAR.

Það eru svo breyttir tímar í íslensku þjóðfélagi að nauðsynlegt er að hugsa margt upp á nýtt. Staðan hjá okkur er einfaldlega þannig að það verður að nýta alla hugsanlega möguleika til atvinnusköpunar,sem skapa okkur gjaldeyristekjur.

Stækkun álversins í Straumsvík hlýtur að vera einn af þeim kostum sem nú verður að skoða upp á nýtt.

Það er því eðlilegt að á þessum tíma verði efnt til kosninga í Hafnarfirði að nýju,þannig að fólk geti gert upp hug sinn miðað við gjörbreyttar aðstæður frá fyrri kosningu.


mbl.is Niðurstaða íbúakosninga verði virt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alveg sammála þér.

Þegar þessar kosningar voru á sínum tíma, þá var bullandi góðæri á landinu.  Núna eru tímarnir öðruvísi og margir spekingar að spá það mikilli verðbólgu að almenningur í landinu á eftir að blæða, mikið.

Ef þetta eru ekki aðstæður til að endurkjósa um stækkun álvers,  þá veit ég ekki hvað gæti talist til aðstæðna sem krefjast þess.

Það eru álver sem skapa atvinnu, og innflutning og tekjur í ríkiskassann.  Ekki mosaspildur og hippar útí skógi.

Ég er frá Hafnafirði, og ég er samþykkur stækkun Álversins.

Jóhannes H. Laxdal (IP-tala skráð) 15.10.2008 kl. 14:36

2 Smámynd: Jónas Yngvi Ásgrímsson

Sæll Sigurður

Ef á að kjósa í Hafnarfirði um stækkun álversins er þá ekki líka ástæða til kosninga hér í Skeiða- og Gnúpverjahreppi um virkjanir í Þjórsá?

Jónas Yngvi Ásgrímsson, 16.10.2008 kl. 10:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 828296

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband