19.12.2008 | 09:58
Ekki sama hver á í hlut.Er Baugur heilagur?
Það er með ólíkindum hvernig Jón góði Ásgeir bregst við ef hann og/eða fyrirtæki hans sætir einhverri gagnrýni eða rannsókn. Þá er gripið til upphrópana að hér sé einungis um skipulagðar ofsónir að ræða runnar undan rótum Davíðs Oddssonar og Sjálfstæðismanna.
Jón góði Ásgeir hefur í gegnum tíðina viljað draga upp þá mynd að hann og fyrirtæki hans séu svo góð að það megi ekki ræða um þau nema á jákvæðan hátt.Hann vill líta á sig sem heilagan mann sem ekki megi snerta.
Ólíkt öðrum athafnamönnum hef´ég alltaf borgað mína skatta og staðið við mínar skyldur á Íslandi,segir Jón góði Ásgeir.Flott fyrir skattayfirvöld að fá þessa yfirlýsingu.Jón hlýtur að upplýsa hvaða aðilar þetta eru.Það er líka flott að fá yfirlýsingu um að Jón góði Ásgeir ætli að standa við sínar skuldbindigar. Ætlar hann að borga almenningi þá fjármuni sem ævintýramennska hans í bankakerfinu og útrásinni sem tapast hafa. Eigum við að trúa þessu? Ætlar hann að selja sín fyrirtæki til að borga okkur? Eigum við að trúa því?
Þessir athafnamenn eins og þeir vilja kalla sig verða að gera sér grein fyrir því hvernig þeir eru búnir að leika íslensku þjóðina. Þjóðin situr uppi með afleiðingarnar af glæframennskunni.
Jón góði Ásgeir er ekkert hafinn yfir gagnrýni og rannsókn.
![]() |
Jón Ásgeir: Ekki sama hver á í hlut |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Sigurður Jónsson
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Eyjafréttir
- Eyjan
- Sjálfstæðisflokkurinn
- Víkurfréttir
- Barnabörnin
- Sveitarfélagið Garður
- Reykjanesblaðið Kemur út hálfsmánaðarlega.
Bloggvinir
-
gumson
-
nkosi
-
addi50
-
baldher
-
kaffi
-
birgitta
-
bjarnihardar
-
artboy
-
gattin
-
carlgranz
-
diesel
-
gagnrynandi
-
einarbb
-
ellidiv
-
eyglohardar
-
ea
-
fhg
-
gesturgudjonsson
-
gretarmar
-
gudbjorng
-
lucas
-
dramb
-
gylfig
-
fosterinn
-
smali
-
helgi-sigmunds
-
helgimar
-
helgigunnars
-
himmalingur
-
hjorturgud
-
ibvfan
-
jakobk
-
johannp
-
jonmagnusson
-
jonsnae
-
kolbrunerin
-
ladyelin
-
lotta
-
liljabolla
-
altice
-
ludvikludviksson
-
maggij
-
iceland
-
redlion
-
rynir
-
heidarbaer
-
sigurjon
-
sv11
-
sigurdurkari
-
siggith
-
steffy
-
stebbifr
-
eyverjar
-
svanurg
-
tibsen
-
vefritid
-
nytthugarfar
-
nautabaninn
-
hector
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
iceberg
-
tbs
-
doddidoddi
-
valdivest
-
malacai
-
annabjorghjartardottir
-
launafolk
-
bjarnimax
-
bookiceland
-
eeelle
-
gauisig
-
elnino
-
zumann
-
gp
-
morgunblogg
-
minos
-
daliaa
-
johannesthor
-
stjornun
-
jonlindal
-
bassinn
-
kuldaboli
-
kristjan9
-
maggiraggi
-
odinnth
-
omarbjarki
-
oskareliasoskarsson
-
skari
-
siggus10
-
siggisig
-
steinn33
-
valdimarjohannesson
-
thjodarheidur
-
valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sigurður.
Jón Ásgeri og co voru gerendur í hruni Íslands. Ýmislegt bendir til að margt ólöglegt hafi átt sér stað í aðdraganda bankahrunsins og þá erum við ekki að tala um nokkra miljónir, heldur milljarða eða hundriði milljarða.
Núverandi kæra Helga er skrípaleikur manns, sem kann ekki að viðurkenna ósigur. Ef hann er að vinna fyrir Davíð (eins og margir gagnrýnendur halda fram) þá ætti hann að skynja að launagreiðendur hans (þjóðin) vill rannsókn á nútiðinni en ekki tilfærslur í bókhaldi um traktora eða annað slíkt frá því um aldamótin.
Sigurður, ef þú áttar þig ekki á þessu þá mun önnur skynsamleg gagnrýni þín falla um sjálfa sig. Ómerkileg atriði úr fortíðinni mun aðeins hjálpa þeim sem komu þjóð okkar á hausinn. Gættu að því.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 19.12.2008 kl. 10:50
Ég held að það ætti að einbeita sér af því hvað gekk á í Glitni síðustu mánuðina og árin fyrir hrunið og ákæra í því ... frekar en að velta sér upp úr einhverjum sköttum sem hann á að hafa borgað...
Óhæft réttarkerfi...
ThoR-E, 19.12.2008 kl. 11:42
JÁJ hefur hingað til reynst traustins verður hvað varðar öll dómsmál sem hent hefur verið í hann og fjölskyldu. 7 ár og milljón ákæruliðir (svo við tölum ekki um fjárupphæðir) = einn skítadómur sem voru bókhaldsmistök, smávægileg.
borghildur8 (IP-tala skráð) 19.12.2008 kl. 20:03
Sammála þér Omar. þetta er að verða aðhlátursefni allra hugsandi manna Ég tel að menn eins og Helgi ættu að snúa sé að einhverju öðru starfi. Hér virðist ekki vera neitt réttarríki lengur. Að dómstóll skuli taka við slíkri ákæru er méir en furðulegt það etr ósvífið og sy.nir hverskonar réttarríki við búum við
hafsteinn sigurbjörnsson (IP-tala skráð) 19.12.2008 kl. 20:20
Í bréfi til mín, frá Nýja Landsbanka Íslands, segir að sá gamli banki hafi þurft að afskrifa skuldir Jóns góða Ásgeirssonar um 60 %, já sextíu prósent. Þeir treysta honum ekki betur, hann geti aðeins borgað 60 % skulda sinna. Þetta sit ég upp með ásamt þúsundum íslendinga sem áttu í sjóðum sem treystu honum. Bara Landsbankinn segist tapa 8000 milljónum á honum, þessum eina gaur. Já það var gaman að versla ódýrt í Bónus ! Prump dýr, allt er gegn honum núna, sama hvað Jóhannes pabbi (er ekki drulluhali) segir. Menn geta bara ekki borið ábyrgð á börnum sínum.
Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 19.12.2008 kl. 21:48
Þetta eru Skipulagðar Ofsóknir það Sjá Það Allir
Skrímslin í Alþingishúsinu eru að Plotta þetta til að Dreifa Athyglinni Frá Sér
Kveðja
Æsir (IP-tala skráð) 19.12.2008 kl. 22:05
Örugglega ekki Baugsarmurinn.
í ljósi Glitsins? Ofureignahaldins? Markaðssetningarinnar?
Júlíus Björnsson, 19.12.2008 kl. 22:38
Nei, Sigurður, Baugur er ekki heilagur.
Jón Valur Jensson, 20.12.2008 kl. 09:04
frysta eignir þessa manna STRAX
Jón Snæbjörnsson, 20.12.2008 kl. 17:32
Algerlega sammála þér Sigurður.
Sigurður Sigurðsson, 22.12.2008 kl. 08:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.