Framsókn á móti Vinstri stjórninni,styður hana samt. Formaðurinn vill vinstri stjórn eftir kosningar.Er ekki allt í lagi?

Margir Framsóknarmenn hafa örugglega tekið andköf þegar þeir hlustuðu á formann sinn í Silfri Egils á sunnudaginn. Þar var Sigmundur Davíð sourður hvort hann væri ánægður með Vinstri stjórn VG og Samfylkingar. Nei,sagði formaðurinn. Ætlar þú samt að styðja stjórnina? Já,sagði Sigmundur Davíð formaður.

Vilt þú Vinstri stjórn eftir kosningar var formaðurinn spurður. Já,sagði formaðurinn og lýsti því yfir að hugur hans stefndi ekki til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn.

Já það er ekki skrítið að margir Framsóknarmenn skuli nú vera óhressir með  að formaðurinn skuli hafa búið til Vinstri stjórn án þess að eiga aðild að henni.Margir eru óhressir með að Samfylkingin fer sínu fram og hlustar lítið á Framsóknarflokkinn.

Það er furðulegt að lýsa því yfir að Framsóknarflokkurinn skuli vera óánægður með Vinstri stjórnina en styðja hana samt.

Það er því ekkert skrítið að Framsóknarflokkurinn skuli vera að missa fylgi sitt,samkvæmt nýjustu skoðunakönnunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Nei það er ekki allt í lagi, ég er ekki alveg að sjá Framsókn og Samfylkingu vinna saman, miðað við hvernig spjótin köstuðust á milli Árna Páls og Sigmundar, Sigmundur sagðist styðja 3-4 mál sem engin hefðu komið fram, en í staðinn þá er verið að koma með einhver eld gömul mál á þingið, en heimilin og fyrirtækin geta bara beðið, ég set spurningarmerki við það sem Sigmundur sagði þegar hann var spurður út í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki, að hann teldi það ólíklegt, sterkur leikur hjá honum að vísu, þar sem það virðist vera þannig að það er allt Sjálfstæðisflokknum að kenna, en það er nú bara þannig að það voru Framsókn og Samfylking sem voru með bankamálin á sínum snærum.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 16.3.2009 kl. 21:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 828300

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband