Er Nýtt líf brandarablað?

Svei mér þá ég held maður verði að gerast áskrifandi að tímaritinu Nýju lífi. Þetta hlýtur að vera frábært brandarablað. Þessi brandari að velja Jóhönnu verkstjóra Vinstri stjórnarinnar er alveg frábær brandari. Eftir hverju ætli sé eiginlega farið þegar ákveðið er að veita þessa viðurkenningu.

Já Nýtt líf er stórkostlegt brandarablað. Hverjir ætli gefi nú út þetta ágætlega blað ?


mbl.is Jóhanna valin kona ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórólfur Ingvarsson

Mér finnst þetta ekki fyndið og miða við þetta stutta myndskeið í sjónvarpsfréttum þá virtist vera full alvara þarna á bakvið svo furðulegt sem það nú er.

Þar sem ég hef verið til sjós þá hefur verið viðhaft um þá sem algjörlega hafa brugðist í því sem þeim hefur verið falið að leysa af hendi og ekki hægt að finna þeim neitt til málsbóta þó vel sé leitað, að þeir séu með allt niður um sig.

Svo sannarlega á það við um Jóhönnu Sigurðardóttir sem verkstjóra í þessari ömurlegu vinstri stjórn, að hún er sko með allt niður um sig.

Þórólfur Ingvarsson, 11.12.2009 kl. 07:38

2 identicon

Já þetta er meinfyndið blað og hittir stundum naglan á höfuðið.Hún fær þennan titill vegna þeirra svika sem hún hefur sleigið svo rækilega í gegn með.Hún og Svikagrímur hafa átt að fá þessi verðlaun bæði finnst mér.

María Gísladóttir (IP-tala skráð) 11.12.2009 kl. 07:56

3 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Er von að spurt sé - þetta væri brandari ef afleiðingarnar af gjörðum hennar væru ekki svona alvarlegar.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 11.12.2009 kl. 10:10

4 identicon

Það er Birtíngur, sem gefur út Nýtt Líf.  En eins og menn vita er Birtíngur í eigu Hreins Loftssonar og þar með óbeint í eigu Baugs.

Ef ástandið samfélaginu hefði verið normalt, ætli Nýtt Líf hefði þá ekki valið forseta Íslands mann ársins?

Einar Fróði (IP-tala skráð) 11.12.2009 kl. 11:06

5 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Það er rétt hjá þér, þetta lítur út eins og brandari. Að Jóhanna skyldi láta ljúga sig inn í embættið lítur líka út eins og brandari. En þetta er alvarlegt mál í núverandi árferði. Forsætisráðherra sem þarf túlkaþjónustu og reiðir sig að mestu á álit sérfræðinga, getur ekki verið góður kostur. Við þurfum einstakling með góða menntun og reynslu af alþjóðasamskiptum í forsætisráðuneytið, en ekki gamla konu með sterka réttlætiskennd. Kannski hafa ímyndarsérfræðingar Samfylkingarinnar talað við vin sinn Hrein og fengið þetta í gegn?

Jón Ríkharðsson, 14.12.2009 kl. 13:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 828272

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband