Samfylkingarfólk. Munið að enda allar ræður á því að segja eitthvað ljótt um Davíð.

Frægt dæmi úr mannkynssögunni er um Kató gamla sem endaði allar sínar ræður á því að segja. Auk þess legg ég til að Karþagóborg verði lögð í eyði. Eiihvað svipað ástand virðist vera innan Samfylkingarinnar. Ingibjörg Sólrún var með Davíð á heilanum. Hún hél aldrei svo ræðu en hún sæi sig tilneydda að tala um hinn ógurlega Davíð. Það sem var eftst á hennar lista í samtölum við Geir H.Haarde virðist alltaf hafa verið óskin um að reka Davíð úr Seðlankanum. Nú heldur hún því fram að Geir hafi lofað því,en hvernig var það nú?  Einhvers staðar hefur það nú komið fram að það hafi verið sjálf Ingibjörg Sólrún sem bað um frest á öllum aðgerðum m.a. breytingukm á ráðherraliði o.fl.H´ðun hafði gildar ástæður til að biðja um frest,en er ekki ansi ódýrt að kenna Geir um allt.

Jóhanna arftaki Ingibjargar Sólrúnar fékk heilaþvott áður en hún tók við. Eina sem gera þarfr er að losna við Davíð. Samkvæmt öllum fréttum virðist tillagan um að reka Davíð vera ein af þeim fáu sem fullkomin sátt r´ðikti um milli Vinstri flokkanna.

En ekki batnaði nú ástandið að mati Samfylkingarinnar. Nú er Davíð orðinn ritstjóri Moggans. Það verður að halda áfram að benda á og kenna þessum manni um allt sem illa hefur farið í þjóðfélaginu og það sem eftir á að fara illa.

Þess vegna verður nú að ryfja upp orð Ingibjargar Sólrúnar. Hvers vegna eru ekki rifjaðar upp lofræður Samfylkingarinnar um Bónus feðgana. Passar það ekki núna.

Sennilega eru öllu Samfylkingarfólki sent bréf þar sem minnt er á að í öllum sínum ræðum og tali skulu menn ávallt enda sitt tal á að segja eitthvað ljótt um Davíð Oddsson.

 


mbl.is Var lofað að Davíð myndi hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Getur ekki ríkisstjórnin sett lög svo hægt sé að reka Davíð úr ritstjónarstólnum líka?  Forsetinn myndi örugglega undirrita þau.

Offari, 14.12.2009 kl. 17:04

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Nú ef þú vilt hafa það svona þá er bara ágætt að þið hin skrifið einhverja kristilega bæn í lokin á ykkar skrifum. Þá er komið jafnvægi.

Finnur Bárðarson, 14.12.2009 kl. 17:32

3 identicon

Hvað væri Samfylkingin án síns "hugmyndafræðilega" leiðtoga Davíðs Oddssonar?

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 14.12.2009 kl. 17:45

4 identicon

En að setja klausur í alla ráðningarsaminga svohljóðandi: Davíði Oddsyni er óheimilt að koma nálægt öllu sem heitir öllu sem heitir íslensk framleiðni...  o.s.frv.

... viljum við vera þekkt fyrir meiri fordóma og nasisma...

eigum við ekki líka  bara að setja hann í sérglerbúð, þar sem hann er til sýnis og fólk getur kastað í hann hlutum bara svona til þess að fólk geti fengið útrás fyrir heift sína og óbeislaða reiði... !!!!

Viskan (IP-tala skráð) 14.12.2009 kl. 18:01

5 Smámynd: Finnur Bárðarson

Góð hugmynd Viskan, glerbúrið, ekki svo galið

Finnur Bárðarson, 14.12.2009 kl. 20:26

6 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Gæti verið að Davíð hafi ofboðið einhverjum? Reikna ekki með að þetta birtist því sumir ritskoða og hreinsa sér í hag og er það ekki sérlega þroskuð vinnubrögð á blogginu. Gangi þér vel góði.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 14.12.2009 kl. 21:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 828296

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband