Eina lausn Vinstri stjórnarinnar er að segja. Það þarf lausnir.

Ég er alveg viss um að það er rétt sem Þór Saari þingmaður Borgarhreyfingarinnar segir að nú sé að magnast upp mun meiri reiði heldur en var í Búsáhaldabyltingunni. Það eru fleiri og fleiri að sjá að Vinstri stjórnin er gjörsamlega vanhæf til að koma með lausnir sem duga fyrir almenning og fyrirtæki. Þolinmæði almennings er á þrotum.Eina sem forystumenn Vinstri stjórnarinnarv segja til lausnar vandanum. það þarf lausnir. Þar með er eins og Vinstri stjórnin haldi að öllu sé búið að bjarga.

Auðvitað eru vandamálin mikil og það er örugglega margt til í því að menn höfðu enga kunnáttu til að reka banka þ.m.t.Seðlabankann. Útrásarvíkingarnir virðast heldur ekki haft þá kunnáttu í viðskiptum sem þurfti. það má ekki gleyma því að fulltrúar Vinstri flokkanna sögðust hafa lausnirnar fyrir heimilin bog myndu tryggja velferð og vinnu.Nú er það að koma betur og betur í ljós að Vinstri stjórnin ræður ekki við vandann.

Það er því örugglega rétt sem Þór Saari segir um að reiði nú er mun meiri en áður. Verði ekkert að gert hlýtur reiðin að magnast enn meira með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já það er sannarlega mikið verk að taka til eftir ykkur aðal leikarana úr Sjálfstæðisflokknum, sjá eftirfarandi: =>

Jón Steinsson: Seðlabankinn klikkaði á grundvallaratriðum

Mynd: Getty Images

Jón Steinsson, hagfræðingur, segir mistök Seðlabankans hafa legið í því að hafa ekki tekið almennileg veð í viðskiptum við bankana. Þar hafi stjórnendur Seðlabankans brugðist algjörlega. Hann tekur undir Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar.

Ólafur fer hörðum orðum um stjórnendur Seðlabankans í nýlegri Pressuúttekt og segir afleiðingarnar af tæknilegu gjaldþroti Seðlabankans um alvarlegri fyrir Íslendinga en Icesave.
Í samtali við Pressuna segist Jón Steinsson, lektor í hagfræði við Colombia háskóla í New York, taka undir flest það sem Ólafur ritar í greinninni og ánægjulegt að sjá hann taka málið upp. Sjálfur hefur Jón verið gagnrýninn á aðgerðir Seðlabankans fyrir og eftir bankahrun.

Jón segir mistök Seðlabankans ekki hafa falist í því að lána bönkunum fé, heldur að taka ekki almenninleg veð gegn lánunum. „Það er algjört grundvallaratriði í peningamálum að þegar banki lendir í lausafjárvanda þá á Seðlabankinn að lána eftir þörfum, en með vaxtaálagi. Og gegn traustum veðum. Bankastjórar Seðlabanka Íslands brugðust algjörlega hvað þetta varðar.“

Jón bendir á að bréfin sem Seðlabankinn tók sem veð á meðan þessu stóð hafi verið að mestu skuldabréf sem gefin voru út af bönkunum sjálfum. „Seðlabankinn var því á þessum tíma að lána hundruð milljarða af almannafé til banka sem hann taldi sjálfur á þeim tíma að væru í miklum vandræðum gegn veði í skuldabréfum gefnum út af þessum sömu bönkum. Þegar bankarnir hrundu urðu þessi veð að mestu verðlaus í einu vetfangi og Seðlabankinn og þar með töpuðu skattborgarar nokkur hundruð milljörðum króna.“

Nætækast hafi verið að taka útlánasöfn bankana sem veð, segir Jón. Ef það hefði verið gert hefði Seðlabankinn eignast útlánasöfnin við hrun bankana og erlendur kröfuhafarnir hefðu setið eftir með minna. „Það er ófyrirgefanlegt að Seðlabankinn hafi klikkað á slíku grundvallaratriði. Og það sýnir betur en flest annað hversu mikil vanþekking hrjáði stjórnendur Seðlabankans,“ segir Jón og tekur undir með Ólafi að þetta verði stærsti skuldabagginn sem leggjast mun á skattgreiðendur eftir bankahrunið.

__________________________________________________________________________

Segir viðvaninga hafa stjórnað seðlabankanum

mynd
Ólafur Arnarson

Tæknilegt gjaldþrot Seðlabankans mun kosta hvert mannsbarn á Íslandi á aðra milljón. Glæfraleikur fyrrverandi bankastjórnar Seðlabankans mun því verða stærsti einstaki skellurinn sem lendir á íslenskum skattgreiðendum, líklega tvöfalt stærri en Icesave segir höfundur bókarinnar Sofandi að feigðarósi.

Ólafur Arnarson, höfundur metsölubókarinnar Sofandi að feigðarósi, skrifar úttekt um tæknilegt gjaldþrot Seðlabankans á pressan.is. Þar kemur fram hörð gagnrýni á lánveitingar Seðlabankans sem voru án haldbærra trygginga heldur í gegnum hinu svokölluðu endurhverfu viðskipti þar sem lánað var í gegnum þriðja aðila.

Hann segir rekstrarþrot Seðlabankans skjóta skökku við í alþjóðlegu samhengi. Á meðan aðrir seðlabankar hafi haft haldbær veð hafi bankinn tapað stórum fjárhæðum. Ólafur segir tapið vera í kringum 350 milljarðar króna sem falli óskipt á ríkissjóð og þar með íslenska skattgreiðendur. Gönuhlaup fyrrverandi bankastjórnar Seðlabankans muni því kosta hvert mannsbarn á Íslandi á aðra milljón.

„Jafnvel þó Icesave verði tvöfalt á við það sem skilanefnd Landsbankans vonast til að verði, þá yrði það samt vel innan við helmingurinn af því tjóni sem skellur á okkur útaf glórulausum útlánum seðlabankans," segir Ólafur.

Ólafur segir að fyrrverandi bankastjórn Seðlabankans beri fulla ábyrgð.

„Þetta sýnir að þarna voru viðvaningar á ferð. Þessir menn kunnu ekki að stýra banka, hvorki seðlabanka né öðrum bönkum. Það lánar enginn banki gríðarlegar upphæðir án þess að hafa haldbær veð á móti, án þess að hafa einhverjar tryggingar í höndunum."

 _______________________________________________________________________

Ef þetta dugir ekki fyrir hvern mann til að sannfærast um að Sjálfstæðisflokkurinn og Davíð hafi skaðað þjóðina meira en nokkuð annað, þá veit ég ekki hvernig hægt er að sannfæra fólk. Sómasamt og heiðarlegt fólk virðist sjá sig knúið til að verja þennan blessaða Sjálfstæðisflokk.

Valsól (IP-tala skráð) 24.5.2009 kl. 13:20

2 Smámynd: Páll Blöndal

Sigurður, hvað leggur þú til?

Páll Blöndal, 24.5.2009 kl. 20:43

3 Smámynd: Sigurður Jónsson

Ég hef tekið undir með tillögu Framsóknarmanna og Tryggva Þórs um niðurfellingu skulda. Sama má segja um tillögu Lilju Mósesdóttur Vinstri grænum sem talar um fasta krónutölu. Frjálslyndi flokkurinn var einnig með útfærða tillögu um þak á verðtrygginguna. Sjálfstæðisflokkurinn var með tillögur um lækkun á greiðslubyrði í 3 ár. Það hafa því margir lagt til tillögur sem væri vert að skoða. Athyglisvert að engar raunhæfar tillögur hafa komið frá Vinstri flokkunum. Ég hef einnig haldið því fram að einhver besta lækningin væri veruleg lækkun vaxta. Stjórnvöld verða að koma bankastarfsemi í það horf að hægt sé að þjóna atvinnuvegunum. það mun þá draga úr atvinnuleysinu. Ég hef marg oft sagt að hverfa verði sem fyrst frá því að hafa ríkisrekstur á svo mörgu eins og staðreyndin er í dag.

Sigurður Jónsson, 24.5.2009 kl. 21:10

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ríkisreksturinn hófst þegar markaðsöflin komu grátandi til mömmu eftir að hafa stundað ofsaakstur undir áhrifum áfengis og lyfja og lent á hvolfi úti í skurði.

En hvað núverandi stjórn varðar þá er ég sammála því að hún virðist vera orðin höktandi og mjög líklega eitthvað að í olíukerfinu. Nú er spurning hversu lengi Steingrímur þraukar í sófanum með þessum ESB heilaskemmdu aulum. Það er auðvitað ekki boðlegt að ráðast ekki að stærstu vandamálum samfélagsins vegna þess að forysta Samfylkingarinnar segir bara í síbylju: "Þetta má bíða því það reddast allt um leið og Össur er kominn til Brussel með bréfið."

Árni Gunnarsson, 24.5.2009 kl. 21:50

5 Smámynd: Friðrik Hansen Guðmundsson

Þessi "Pressuúttekt" hans Ólafs Arnarsonar sló mig bara "kaldan". Er það virkilega svo að Seðlabankinn tapaði 350 milljörðum á gjaldþroti bankanna af því að hann lánaði þeim þetta fé án veða?

Þetta eru slíkar staðhæfingar að ég neita að trúa þeim nema þetta sé staðfest af ráðherra eða Seðlabankanum sjálfum.

Friðrik Hansen Guðmundsson, 25.5.2009 kl. 01:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband