Drekka Íslendingar minna eða ?

Eflaust eru margir sem fagna þeirri frétt að sala á áfengi hafi minnkað um 14%. Það er samt spurning hvort þetta sé eitthvert fagnaðarefni. Er það raunin að við mÍslendingar  drekkum minna núna en fyrir nokkrum mánuðum. Ég er ekki sannfærður um það. Bruggun á léttum vínum í heimahúsum hefur örugglega stóraukist á síðustu vikum. Annars konar brugg s.s. landi hefur einnig alveg öruggælega aukist til muna. Margir sjá fyrir sér þó nokkra tekjumöguleika á að selja ungu fólki og fleirum landa,sem ekki hefur lengur efni á að kaupa áfengi í vínbúðinni.

Það er því mikil spurning hvort ríkisstjórnin eru nokkru að ná fram með sinni óheyrilegu skattheimtu á áfengi. Spurning meira að segja hvort þessi hækkun gefur ríkssjóði það sem áætlað var. Og ekki koma miklar tekjur í ríkiskassann af heimab ruggi og sprúttsölu.

Svo er það ansi hart að allt venjulegt fólk hafi ekki orðið ráð á að kaupa sér rauðvín með helgarmatnum og það er ekki allt komið fram enn. Framundan er enn meikri skattlagning á vörurnar í vínbúðinni og þá eykst enn frekar brugg í heimahúsum að maður tali nú ekki um blómatíð hjá  sprúttsölum.

 

 

 


mbl.is Sala á áfengi minnkar um 14%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skarplega athugað.

Sindri (IP-tala skráð) 13.10.2009 kl. 17:01

2 identicon

Góður landi er 2000 kr líterinn, góður vodki er 6000 líterinn maður þarf ekki að spurja sig hvað unga fólkið velur sér frekar

Óðinn (IP-tala skráð) 13.10.2009 kl. 19:52

3 identicon

Þeir sem að drekka mikið, eru háðir víninu, drekka jafn mikið, en hafa hinsvegar minna fyrir matvælum. Fólk hefur ekki lengur efni á því að kaupa sér gott rauðvín með helgarmatnum, eins og þú orðar það, svo ekki sé minnst á cognac með kaffinu. Þetta gerir lífið á klakanum leiðinlegra en það þegar er. Þeir sem að setja lögin, don‘t care, þeir fá dropann frá ríkina án allra gjalda   

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 13.10.2009 kl. 20:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Jónsson

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson

Hefur mikla reynslu í pólitík, sveitar-

stjórnarmálum og blaðaskrifum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 828287

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband